Úrkomusvæði færist austur Atli Ísleifsson skrifar 28. ágúst 2023 07:12 Hiti á landinu verður á bilinu níu til sextán stig í dag og hlýjast syðst. Vísir/Vilhelm Dálítil lægð er nú nærri Reykjanesi og verður vindur á landinu suðlægur í fyrstu, en snýst síðan í norðvestanátt þegar lægðin hreyfist austur á bóginn.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að lægðinni fylgi úrkomusvæði sem hreyfist austur með lægðinni og rofar svo til í kjölfarið. Hiti verður á bilinu níu til sextán stig, hlýjast syðst. „Skýjað með köflum á Norðausturlandi og sums staðar lítilsháttar væta. Á morgun er þokast dálítill hæðarhryggur yfir landið og vindar því hægir og bjart með köflum, en smá skúrir á Suðausturlandi. Kólnar lítið eitt. Sömuleiðis, útlit fyrir aðgerðalítið veður á miðvikudag og fimmtudag,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Hæg breytileg átt, en norðan 5-10 m/s austast framan af degi. Bjart með köflum, en smá skúrir á Suðausturlandi. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast suðvestanlands. Á miðvikudag og fimmtudag: Hægviðri, en suðaustankaldi með suðurströndinni. Víða smá skúrir, en að mestu þurrt norðaustanlands. Hiti 9 til 14 stig. Á föstudag: Gengur í suðaustanhvassviðri með rigningu, en hægara og þurrt norðaustantil fram á kvöld. Hlýnandi veður í bili. Á laugardag: Útlit fyrir stífa suðvestanátt með rigningu eða skúrum, en þurrt að mestu norðaustantil. Kólnar í veðri. Á sunnudag: Suðlæg átt með vætu víða um land, en þurrt að kalla fyrir norðan.
Veður Mest lesið „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Erlent Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Erlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Djúp lægð grefur um sig Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Tíðindalítið veður en bætir í vind í kvöld Dálítil snjókoma norðantil en þurrt sunnan heiða Lægðin á undanhaldi Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Sjá meira