Vindasamt syðst á landinu Atli Ísleifsson skrifar 8. nóvember 2023 07:10 Hiti verður á bilinu núll til sjö stig að deginum þar sem verður mildast á Suðausturlandi. Vísir/Vilhelm Víðáttumikil lægð er nú suðaustur af Hvarfi á leið austur yfir Atlantshaf. Áhrifa hennar mun gæta að takmörkuðu leyti hér á landi en aðallega er það vindur sem við fáum frá henni og þá einna helst syðst á landinu, um 15 til 23 metra á sekúndu.
Frá þessu segir í tilkynningu á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að að öðru leyti verði svipað veðurlag áfram sem og hitastig. Þannig má reikna með skúrir eða slydduéljum, en yfirleitt bjartviðri suðvestan- og vestanlands. Hiti verður á bilinu núll til sjö stig að deginum þar sem verður mildast á Suðausturlandi. „Þar sem léttir til og sól skín er ágætt að hafa í huga að sólin er mjög lágt á himni þessa dagana og getur auðveldlega blindað ökumenn og þá er gott að vera með hreinar rúður, góð þurrkublöð og nóg af rúðuvökva,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustan 8-15 m/s, hvassast suðaustantil og dálitlar skúrir eða él, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Hiti 0 til 5 stig, mildast syðst. Á föstudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt, og lítilsháttar rigning eða slydda á víð og dreif, en þurrt fyrir austan. Hiti 0 til 5 stig suðvestantil, en annars hiti um frostmark. Á laugardag: Austlæg átt, víða hæg. Dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt að kalla fyrir norðan og austan. Hiti breytist lítið. Á sunnudag, mánudag og þriðjudag: Austanátt með dálítilli úrkomu suðaustantil, en annars þurrt að kalla. Fremur svalt í veðri.
Veður Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Fleiri fréttir Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Sjá meira