„VAR hafði rétt fyrir sér“ Smári Jökull Jónsson skrifar 12. nóvember 2023 08:01 Arteta fagnar ásamt Declan Rice leikmanni Arsenal. Vísir/Getty Mikel Arteta var ánægður á blaðamannafundi eftir sigur Arsenal gegn Burnley í gær. Hann var ósáttur með dómgæsluna í leik Arsenal gegn Newcastle um síðustu helgi en hrósaði þeim í gær.
Sigur Arsenal í gær var nokkuð þægilegur þó svo að Burnley hafi tekist að jafna í 1-1 og Arsenal misst Fabio Vieira af velli með rautt spjald á 83. mínútu. „Ég er mjög ánægður með úrslitin og sérstaklega frammistöðuna. Eftir að hafa spilað fyrir 72 klukkustundum síðar og með síðustu þrjá leiki í huga, hvernig við spiluðum gegn Newcastle, gegn Sevilla og svo nú í dag. Við tókum yfir leikinn á móti liði þar sem er erfitt að taka yfir leikinn. Við sköpuðum margar góðar stöður og mér fannst við eiga sigurinn fyllilega skilinn,“ sagði Arteta á blaðamannafundi eftir leikinn í gær. Fabio Vieira fékk rauða spjaldið á 83. mínútu eftir fremur klaufalega tæklingu. Arteta lét gamminn geysa eftir leik Arsenal og Newcastle um síðustu helgi og gagnrýndi frammistöðu dómarans og þá gaf Arsenal út yfirlýsingu eftir leik sem var af sama meiði. Í gær hrósaði Arteta hins vegar dómgæslunni. „Varðandi rauða spjaldið, já VAR hafði rétt fyrir sér. Dómarinn hafði rétt fyrir sér. Mjög góð ákvörðun, mjög jákvætt hjá Mikel að ræða um það. Góð ákvörðun,“ sagði Arteta og talaði um sjálfan sig í þriðju persónu. „Þetta er það sem þetta lið gerir. Við komum til baka. Við spiluðum á besta mögulega máta til að halda pressunni við topp deildarinnar. Við gefum allt til að vinna leik og eiga það skilið. Þegar andstæðingurinn er betri er bara að óska þeim til hamingju. Mér finnst við hafa verið betri aðilinn í síðustu þremur leikjum.“
Enski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Sjá meira