Líkur á rigningu suðvestantil síðdegis Atli Ísleifsson skrifar 15. nóvember 2023 07:13 Hiti í dag verður frá því að vera kringum frostmark í innsveitum fyrir norðan, upp í sjö stig syðst. Vísir/Vilhelm Áfram er útlit fyrir austlæga átt á landinu þar sem búast má við vindhraða víða á bilinu þrjú til tíu metra á sekúndu, en tíu til fimmtán lengst af við suðurströndina.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að yfirleitt verði þurrt og bjart veður á norðanverðu landinu og skúrir viðloðandi á Suðausturlandi og Austfjörðum. „Seinnipartinn eru líkur til þess að dálítið regnsvæði færi sig yfir suðvesturfjórðung landins. Hiti frá því að vera kringum frostmark í innsveitum fyrir norðan, upp í 7 stig syðst. Á morgun er útlit fyrir litlar breytingar á vinda- og hitasviðinu. Búast má við vætu áfram suðaustantil á landinu, en bjartviðri á Norður- og Vesturlandi. Þegar horft er á veðurkort lengra fram í tímann út vikuna, er áfram útlit fyrir austlæga átt og fremur aðgerðalítið veður,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austan 3-8 m/s, en 8-13 við suðurströndina. Dálítil rigning eða slydda af og til á sunnan- og austanverðu á landinu, en þurrt og bjart annars staðar. Hiti 1 til 6 stig, en um frostmark fyrir norðan. Á föstudag: Suðaustan 5-10 og rigning eða slydda með köflum, en hægari vindur bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Austan 3-10. Bjart að mestu á Norður- og Austurlandi, en annars svolítil rigning eða slydda. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst. Á sunnudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt og víða þurrt veður, en rigning eða slydda austanlands. Hiti kringum frostmark, en hiti 1 til 5 stig við ströndina. Á mánudag: Fremur hæg norðvestlæg eða breytileg átt og bjartviðri, en slydda austanlands framan af degi. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Ákveðin sunnan- og suðvestanátt með rigningu, einkum á Suður- og Vesturlandi. Hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sjá meira