Kevin De Bruyne: Þetta er ekki ég Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2023 10:01 Kevin De Bruyne meiddist í upphafi tímabils en hann hefur ekki eytt tíma sínum í að semja tónlist með Drake. Getty/Robbie Jay Barratt Belgíski knattspyrnumaðurinn Kevin De Bruyne neitar því að hafa komið eitthvað nálægt því að semja nýja lagið hjá kanadíska rapparanum Drake.
Netverjar fóru á mikið flug þegar þeir sáu að „K. De Bruyne“ var skrifaður sem einn af höfundum lagsins „Wick Man“ með Drake. Manchester City maðurinn hefur lagt upp ófá mörkin en er hann líka öflugur á tónlistarsviðinu? Á samfélagmiðlum voru mjög margir sannfærðir um það að Drake hafi þarna fengið stoðsendingu frá stoðsendingakóngi ensku úrvalsdeildarinnar síðustu ára. Svo mikil var umræðan á netinu að De Bruyne sjálfur gat ekki annað en blandað sér í hana. De Bruyne setti fyrst fram í gríni: „Drake vantaði stoðsendingu,“ en bætti svo við: „Að öllu gríni slepptu. Þetta er ekki ég. Mikill aðdáandi samt,“ skrifaði De Bruyne. De Bruyne er meiddur og hefur ekki spilað með Manchester City síðan að hann meiddist í upphafi tímabilsins. Erling Haaland sló líka á létta strengi og sagði að Drake væri ekki sá eini sem vantaði stoðsendingu frá De Bruyne. De Bruyne er í fjórða sæti yfir flestar stoðsendingar í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en alls hefur hann gefið 102 slíkar. Kevin De Bruyne had jokes after seeing that another KDB has a writer's credit on Drake s new song pic.twitter.com/opNarvqbqM— ESPN UK (@ESPNUK) November 17, 2023
Enski boltinn Mest lesið Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Í beinni: Fram - Vestri | Heldur sigurganga Ísfirðinga áfram? Íslenski boltinn Í beinni: ÍBV - KA | KA-menn í vandræðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Golf Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Newcastle | Newcastle getur komist upp fyrir Arsenal Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Þrír frá Liverpool og tveir frá Forest tilnefndir sem leikmaður ársins Maður Serenu kaupir hlut í Chelsea Awoniyi vaknaður eftir lífshættulegar en vel heppnaðar aðgerðir Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Awoniyi sofandi á gjörgæslu og gengst undir aðra aðgerð í dag Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Eigandi Nott. Forest reifst við Nuno þjálfara inn á vellinum Pirruð Man City stjarna: „Þeir reyndu ekki einu sinni að vinna“ Arsenal kom til baka á móti meisturunum á Anfield Newcastle upp í þriðja sætið eftir sigur á Chelsea Enn eitt tapið á Old Trafford Palace fór létt með Tottenham sem hvíldi marga Sjá meira