Hægur vindur og skýjað að mestu Atli Ísleifsson skrifar 11. desember 2023 07:03 Áfram er gert ráð fyrir að verði frost um mestallt land. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir fremur hæga vestan- og norðvestanátt á landinu í dag þar sem skýjað verður að mestu og dálítil él eða slydduél. Þó má reikna með að verði léttskýjað suðaustan- og austanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að áfram verði frost um mestallt land, en sums staðar frostlaust við ströndina þar sem andi af hafi. „Á morgun er síðan suðlæg átt í kortunum, víða 3-8 m/s framan af degi og þurrt veður. Síðdegis gengur í sunnan 8-13 á vestanverðu landinu og þykknar upp þar með svolítilli snjókomu, en slydda eða rigning um kvöldið og hlýnar. Á miðvikudag hvessir síðan enn frekar, þá er útlit fyrir allhvassa eða hvassa sunnanátt með talsverðri rigningu og hlýnar meira. Snýst síðan í suðvestan hvassviðri eða storm á fimmtudag með éljum og kólnar aftur niður að frostmarki. Veðrið á landinu hefur verið rólegt síðustu daga og að ofansögðu má vera ljóst að það muni breytast í vikunni sem nú er að hefjast. Áður en vikan er á enda munum við fá hvassan vind, breytilegt hitastig og úrkomu sem ýmist verður rigning eða snjókoma,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðlæg átt 3-8 m/s, þurrt og bjart veður og frost 3 til 12 stig. Gengur í sunnan 8-13 á vestanverðu landinu síðdegis og þykknar upp með svolítilli snjókomu, en slydda eða rigning þar um kvöldið og hlýnar. Á miðvikudag: Sunnan 13-20 og rigning, talsverð úrkoma sunnan- og vestanlands. Hiti 2 til 8 stig. Vestlægari um kvöldið með skúrum eða éljum. Á fimmtudag: Suðvestan 15-23 og él, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hiti kringum frostmark. Á föstudag: Sunnan- og suðvestanátt og slydda eða snjókoma í flestum landshlutum. Hiti um og yfir frostmarki. Á laugardag og sunnudag: Suðvestanátt og él, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti um frostmark.
Veður Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira