„Það er draumur okkar þriggja að sameinast á ný og vera fjölskylda“ Helena Rós Sturludóttir skrifar 16. desember 2023 19:29 Amelía Steinunn Jensdóttir missti syni sína í fóstur fyrir rúmum tveimur árum. Vísir/Vilhelm Lögmaður seinfærrar móður tveggja drengja, sem settir voru í fóstur fyrir rúmum tveimur árum, segir óskiljanlegt að Reykjavíkurborg hafi ekki tekið tillit til fötlunar hennar við mat á stuðningsþörfum barnanna. Prófessor í fötlunarfræði segir allt of algengt að börn séu tekin of snemma frá foreldrum.
Mál fjölskyldunnar hefur verið til skoðunar barnaverndar frá árinu 2017 með hléum og segir Flóki Ásgeirsson, lögmaður móðurinnar, tilkynningar um hana hafa borist til barnaverndar í raun frá því að hún gekk með fyrri son sinn. Enginn vafi sé á því að afskiptin helgist alfarið af fötlun hennar en kerfið sem eigi að mæta stuðningsþörfum hennar sem fatlaður foreldri hafi aldrei verið verið virkjað. Þráir ekkert heitar en að fá börnin heim „Ég vil fá stuðning heim fyrir mig og syni mína svo að strákarnir mínir geti hætt að líða illa og verið hjá móður sinni sem þráir ekkert heitara en að fá börnin sín heim,“ segir Amelía sem er þroskaskert en hefur aldrei hlotið stuðningsþjónustu sem fatlaður einstaklingur. Amelía segist sakna sona sinna mikið en hún fær að hitta þá tvisvar í viku og aðra hverja helgi. „Að fara út að leika með þeim. Líka bara að geta farið út í snjóinn, búa til snjókarl eða fara í skíðabrekku og renna á snjóþotu og gera eitthvað skemmtilegt með þeim. Ég er bara með tómar hendur sem er virkilega sorglegt því ég hef ekki gert neitt,“ segir Amelía en samkvæmt gögnum sem fréttastofa hefur undir höndum hefur Amelía ekki brotið gegn börnum sínum. Hún hefur hins vegar, fötlunar sinnar vegna, átt í erfiðleikum með að sinna ákveðnum verkefnum í tengslum við foreldrahlutverkið. Geti átt yndislegt líf saman Reykjavíkurborg fór fram á það í sumar að Amelía yrði svipt forsjá yfir drengjunum sínum tveimur en Flóki segir gat í kerfinu þegar kemur að því að að meta stuðningsþörf fatlaðra foreldra og því hafi málið dregist. Hann hafi ekki enn fengið skýr svör um hver það er sem metur þessa stuðningsþörf. Amelía telur að með viðeigandi stuðningi fengju drengirnir hennar yndislegt líf hjá henni. „Það er draumur okkar þriggja að sameinast á ný og vera fjölskylda. Hvaða foreldri getur lifað án barnanna sinna, enginn,“ segir Amelía sem hefur miklar áhyggjur af sonum sínum og langar að veita þeim festu. Hanna Björg Sigurjónsdóttir er prófessor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands og hefur rannsakað mál fatlaðra foreldra í rúm þrjátíu ár. Vísir/Ívar Fannar Algengt að seinfærir foreldrar missi börn sín Hanna Björg Sigurjónsdóttir, prófessor í fötlunarfræði, hefur rannsakað mál fatlaðra foreldra í áratugi. Hún segir alvarlegt ef börn eru tekin frá seinfærum foreldrum ef ekki hefur verið veittur nægur eða viðeigandi stuðningur. „Seinfærir foreldrar eru alveg eins og allir aðrir foreldrar mjög mismunandi og stundum gerist það að það þarf að taka barn af foreldrum sínum en það er mín reynsla í gegnum tíðina að í langflestum tilvikum er sú að það er alls ekki búið að reyna allt. Við erum að fara inn of fljótt og veitt of lítið,“ segir Hanna Björg. Seinfærir foreldrar þurfi góðan stuðning Engin tölfræði sé til hér á landi um það hversu margir seinfærir foreldrar hafi misst forsjá yfir börnum sínum. Ástæðan sé sennilega sú að ekki öll mál rati í dómsal. „Erlendar rannsóknir benda til þess, og eru samhljóða, að í fjörutíu til sextíu prósent tilvikum missi foreldrar forsjá og við höfum enga ástæðu til að ætla að það sé öðruvísi hérna heima,“segir Hanna Björg jafnframt. Að sögn Hönnu Bjargar er samfélagið vel í stakk búið til að veita seinfærum foreldrum stuðning. Sá stuðningur geti verið mjög mismunandi eftir fjölskyldum. „Við þurfum að gæta þess að krefjast ekki of mikils og ætla ekki of mikils,“ segir hún. „Það skiptir öllu máli að við séum ekki of dómhörð heldur gætum við að því að styðja og styrkja fjölskyldurnar eins og þær eru. Reyna að hafa heildarsýnina og týna okkur ekki í smáatriðum.“
Samfélagsleg ábyrgð Málefni fatlaðs fólks Reykjavík Barnavernd Fjölskyldumál Börn og uppeldi Tengdar fréttir Segjast eiga skilið annað tækifæri til að sinna uppeldinu Seinfærir foreldrar sem sviptir voru forsjá dóttur sinnar ætla að leita til Mannréttindadómstóls Evrópu. Lögmaður þeirra segir allt of skamman tíma hafa liðið frá fyrsta inngripi barnaverndarnefndar þar til farið var fram á sviptingu. Fái málið efnismeðferð verður það fyrsta íslenska málið sinnar tegundar á borði dómstólsins. 30. júní 2018 19:45 Vildi alltaf verða móðir Maríu Hreiðarsdóttur hefur vegnað vel í uppeldishlutverkinu. Hún er seinfær móðir og segist hafa notið góðs stuðnings. María vill meiri umræðu um ófrjósemisaðgerðir á þroskaskertum og réttindi þeirra til fjölskyldulífs. 25. mars 2017 11:00 Ólust upp hjá seinfærri móður: „Ekki dæma erfiðleikana út frá skerðingu foreldrisins“ Segir að mun fleiri alist upp hjá seinfærum foreldrum en marga grunar. 4. febrúar 2015 21:15 Fordómar gegn geðfötluðum í barnaverndarmálum Foreldrar sem eru seinfærir eða eiga við geðrænan vanda að stríða verða fyrir fordómum um foreldrahæfni þeirra. 11. júlí 2014 10:45 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira
Segjast eiga skilið annað tækifæri til að sinna uppeldinu Seinfærir foreldrar sem sviptir voru forsjá dóttur sinnar ætla að leita til Mannréttindadómstóls Evrópu. Lögmaður þeirra segir allt of skamman tíma hafa liðið frá fyrsta inngripi barnaverndarnefndar þar til farið var fram á sviptingu. Fái málið efnismeðferð verður það fyrsta íslenska málið sinnar tegundar á borði dómstólsins. 30. júní 2018 19:45
Vildi alltaf verða móðir Maríu Hreiðarsdóttur hefur vegnað vel í uppeldishlutverkinu. Hún er seinfær móðir og segist hafa notið góðs stuðnings. María vill meiri umræðu um ófrjósemisaðgerðir á þroskaskertum og réttindi þeirra til fjölskyldulífs. 25. mars 2017 11:00
Ólust upp hjá seinfærri móður: „Ekki dæma erfiðleikana út frá skerðingu foreldrisins“ Segir að mun fleiri alist upp hjá seinfærum foreldrum en marga grunar. 4. febrúar 2015 21:15
Fordómar gegn geðfötluðum í barnaverndarmálum Foreldrar sem eru seinfærir eða eiga við geðrænan vanda að stríða verða fyrir fordómum um foreldrahæfni þeirra. 11. júlí 2014 10:45