Áslaug Arna og Kristófer Acox í trylltu stuði á Hax Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 26. desember 2023 17:09 Brakandi ferskur ísskúlptúr í Garðabænum en öllu eldri skúlptúr í fjöllunum í Perú. Já, Íslendingar bralla ýmislegt þessi jólin. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra og körfuboltakappinn Kristófer Acox nýttu sér tækifærið að geta sofið út á dögunum og skelltu sér á næturklúbbinn Hax. Vala Kristín og Hilmir Snær skelltu sér í skötu hjá Jóa í Múlakaffi.
Já, á öðrum degi jóla liggur margt átvaglið uppi í sófa með samviskubit eftir að hafa látið til sín taka í veisluhöldum jólanna. En hey, þetta eru jólin og þá má alveg njóta. Það gerðu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem sást í banastuði á næturklúbbnum Hax á föstudagskvöldið fyrir jól. Áslaug Arna er einhleyp eins og fleiri um jólin og þeirra á meðal er körfuboltafolinn Kristófer Acox. Skötustuð Þorláksmessu er dagur skötu og það vita leikararnir Hilmir Snær Guðnason og Benedikt Erlingsson sem brugðu undir sig betri fætinum og buðu betri helmingunum sínum í skötu hjá Jóa í Múlakaffi í Múlunum. Þeim Hilmi, Völu Kristínu, Benna og Tinnu bættist óvæntur liðsauki þegar Þórunn Sigurðardóttir leikstjóri og menningarfrömuður bættist í hópinn. Þau fimm höfðu um nóg að tala úr leikhúslífinu en Þórunn er sérstaklega góður sögumaður. Birta Líf úr Teboðinu lét sjá sig á Tres Locos í Hafnarstrætinu. Hún gerði vel við sig í mat og drykk eins og vinkonurnar Ástrós Trausta og Birgitta Líf Björnsdóttir sem sátu á öðru borði. Góður matur enda kostar hann skildinginn. Dúettinn Svavar og Svali litu við í GK í miðbænum á laugardaginn. Svali var með jólasveinahúfu á hausnum enda vandfundinn meiri jólasveinn. Hann stóð svo vaktina á Bylgjunni á aðfangadag þar sem jólalögin fengu eðli máls samkvæmt að hljóma. Ljósmyndari að elta Sögu Garðars Fleiri voru í gjafahugleiðingum á Þorláksmessu og þeirra á meðal Sindri Sindrason sjónvarpsþulur ásamt sínum heittelskaða Alberti. Skerfirðingarnir völdu Kringluna fram yfir miðborgina í leitinni að síðustu jólagjöfunum. Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður var á vappinu í Kringlunni og var ekkert að stressa sig þar sem hann sat með dóttur sinni á kaffihúsi Kringlunnar. Saga Garðars uppistandari á von á barni. Hvort það hafi verið af því tilefni eða örðu að ljósmyndari elti hana hvert fótmál í miðbænum á Þorláksmessu þá tók fólk allavega eftir hinni glæsilegu Sögu með óléttubumbuna úti við jólaköttinn við Lækjartorg. Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir er í skýjunum með tengdason sinn Sigurð Hrannar Björnsson sem fagnar þrítugsafmæli um hátíðarnar. Matthildur Margrét dóttir Árna Haukssonar og Ingu Lindar er 23 ára en þau Sigurður Hrannar giftu sig sumarið 2022. Inga Lind segist á Instagram hafa unnið í tengdasonarlottóinu. Gekk Machu Pichu í Crocs Útvarpskonan Sunna Valgerðardóttir er meðal þeirra sem fagnar jólunum í sól og sumaryl á Tenerife. Þar hefur dauð rotta orðið á vegi hennar og sömuleiðis kaffihúsið Café París. Leikarahjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson njóta áfram lífsins í Suður-Ameríku yfir hátíðarnar. Hjónin gengu með börnum sínum upp í Machu Picchu í Perú. Gísli fer sínar eigin leiðir og gekk í sjö klukkustundir í Crocs skóm. Snjónum kyngdi á höfuðborgarsvæðinu í dag og þá opnuðu sundlaugarnar aftur eftir jólafrí. Reyndar bara sumar laugar á höfuðborgarsvæðinu sem varð til þess að Vesturbæjarlaugin var algjörlega stöppuð. Meðal þeirra sem lét sjá sig í lauginni voru hjónin Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi, og Íris Ösp Bergþórsdóttir leikkona. Sást Sverrir á tali við frænku sína Selmu Björnsdóttur söngkonu. Listamaðurinn Björn Thors Guðni og Birna hlaupagarpar. Margir nýttu snjóinn til að byggja snjóhús, renna sér á sleða eða hnoða sjóbolta. Björn Thors leikari nýtti snjóinn til að gera snjóskúlptúr í garðinum. Sem betur fer fyrir aðdáendur snjóskúlptúra náði Unnur Ösp Stefánsdóttir eiginkona hans listaverkinu á myndband. Birni sannarlega margt til lista lagt. Jón Arnór Stefánsson körfuboltakappi var meðal þeirra sem létu sér nægja að gera snjókarl með dóttur sinni, en sá var sannarlega glæsilegur. Kirkjuhlaupið á annan dag jóla er að ná að festa sig í sessi hjá hlaupagörpum á höfuðborgarsvæðinu. Meðal þeirra sem tók þátt var Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og var Birna Bragadóttir hjá Elliðastöð Orkuveitu Reykjavíkur meðal þeirra sem hljóp og fékk sjálfu af sér með forsetanum. Guðni var aldrei þessu vant ekki með buff.
Ástin og lífið Jól Mest lesið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Fleiri fréttir Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið Sjá meira