Toptul tryggir gæði og lágt verð Sindri 23. janúar 2024 15:03 „Það er varla hægt að finna verkstæði á landinu sem eru ekki með Toptul skáp eða verkfæratösku,“ segir Markús Auðunn Viðarsson, markaðsfulltrúi hjá Sindra. Toptul handverkfærin hafa notið mikilla vinsælda frá upphafi hér á landi segir Markús Auðunn Viðarsson, markaðsfulltrúi hjá Sindra. „
Það sem einkennir fyrst og fremst verkfærin frá Toptul eru mikil gæði og lágt verð,“ segir Markús. „Fyrirtækið framleiðir eftir pöntun frá okkur sem tryggir hágæða vörur til okkar á mjög sanngjörnu verði. Vörurnar frá Toptul eru fyrst og fremst ætlaðar bifreiðaverkstæðum enda nota flest af stærri bifreiðaverkstæðum landsins verkfæri, skápa og fleiri vörur frá þessu þekkta fyrirtæki. Það er varla hægt að finna verkstæði á landinu sem eru ekki með Toptul skáp eða verkfæratösku. Utan þess hafa verkfærin og skáparnir líka verið vinsæl hjá öðrum gerðum fyrirtækja og einnig einstaklingum.“ Verkfæraskáparnir frá Toptul eru einstaklega þægilegir. Sindri var sett á fót árið 1949. Utan verkfæra og vara frá Toptul flytur fyrirtækið inn og selur verkfæri, vélar, loftpressur, festingavörur og vinnufatnað frá þekktum framleiðendum á borð við Dewalt, Kraftwerk, Blåkläder, Atlas Copco, Contracor, Ridgid, Knipex og Scangrip. Gott pláss einkennir verkfæraskápan frá Toptul. Toptul framleiðir einnig ýmis konar sérverkfæri fyrir ólíkar gerðir bifreiða. „Þar erum við til dæmis að tala um sérhönnuð verkfæri til að auðvelda bremsuskipti, til að skipta um dempara og ýmislegt fleira. Sum þessara verkfæra eru auk þess sérhæfð fyrir ákveðnar gerðir bíla.“ Gjafakort í Sindra er tilvalin gjöf á bóndadag, næsta föstudag. Bóndadagurinn er næsta föstudag, 26. janúar, og segir Markús tilvalið að gefa bændum landsins gjafakort í Sindra. „Verslun okkar er svo sannarlega dótabúð fyrir karlmenn og raunar konur líka. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru verkfæri, vinnufatnaður eða ýmislegt annað. Einn stór kostur við gjafakortin okkar er að þau eru rafræn og því hægt að geyma í veskinu í símanum. Upphæðin sést því alltaf þar og um leið hvaða upphæð er eftir á kortinu sé það ekki fullnýtt við fyrstu kaup.“ Allt vöruúrval Sindra má finna á Smiðjuvegi 11 í Kópavogi. Einnig er Sindri með útibú í Reykjanesbæ og á Selfossi en vörur frá Sindra fást einnig í verslunum Johan Rönning á Akureyri og Reyðarfirði. Nánari upplýsingar á sindri.is.
Hús og heimili Vinnustaðurinn Mest lesið Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira