Innlent

Mikill meiri­hluti vill engan nú­verandi forsetaframbjóðanda

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sigríður Hrund Pétursdóttir og Arnar Þór Jónsson eru nefnd á nafn af átta og sex prósent svarenda.
Sigríður Hrund Pétursdóttir og Arnar Þór Jónsson eru nefnd á nafn af átta og sex prósent svarenda.

Mikill meirihluti þjóðarinnar, 77 prósent, vill engan af þeim forsetaframbjóðendum sem hafa tilkynnt framboð sitt sem næsta forseta. Þetta eru niðurstöður nýrrar netkönnunar Prósents.

Í tilkynningu frá Prósent kemur fram að gögnum hafi verið safnað 16. til 24. janúar. Í úrtaki voru 1800 einstaklingar og var um að ræða netkönnun meðal könnunarhóps Prósents. Svarhlutfall var 51 prósent. Spurt var tveggja spurninga um væntanlegt forsetaframboð.

Fyrri spurningin var opin spurning um hvern svarendur vilji að verði næsti forseti Íslands. Síðan spurði Prósent um viðhorf til þeirra einstaklinga sem þegar hafa tilkynnt framboð sitt.

Stutt milli frambjóðenda

Arnar Þór Jónsson, Axel Pétur Axelsson, Ástþór Magnússon, Sigríður Hrund Pétursdóttir og Tómas Logi Hallgrímsson hafa öll boðið sig fram til forseta. Svarendur gátu hakað við frambjóðendur eða valkostinn „Enginn af ofangreindum.“

Prósent

77 prósent einstaklinga sem tóku afstöðu svöruðu að þeir vildu engan af ofangreindum sem næsta forseta Íslands. 23 prósent völdu frambjóðendur af lista.

Skiptust hlutföllin þannig að Sigríður Hrund Pétursdóttir fékk átta prósent svara, Arnar Þór Jónsson sex prósent, Tómas Logi Hallgrímsson fimm prósent, Ástþór Magnússon þrjú prósent og Axel Pétur Axelsson eitt prósent.

Flestir vilja Guðna áfram

Í svörum við opnu spurningunni um það hverjir svarendur vilja að verði næsti forseti Íslands nafngreindu 44 prósent svarenda einstakling en 56 prósent tóku ekki afstöðu.

Níu prósent svarenda nefndu Guðna Th. Jóhannesson, núverandi forseta Íslands. Fjögur prósent nefndu Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Þrjú prósent nefndu Höllu Tómasdóttir.

Tvö prósent nefndu Ólaf Jóhann Ólafsson rithöfund, eitt prósent Jón Gnarr grínista og leikara, Arnar Þór Jónsson var nefndur af eitt prósent svarenda líkt og Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur og Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttakona.

Auk þeirra voru 89 til viðbótar nefndir á nafn af svarendum Prósents. Þau sem voru nefnd fimm til níu sinnum voru Davíð Oddsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Víðir Reynisson.

Prósent



Fleiri fréttir

Sjá meira


×