Sú sænska tryggði Arsenal deildabikarinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2024 17:00 Leikmenn Arsenal fagna Stinu Blackstenius eftir að hún hafði skorað eina mark úrslitaleiksins. Getty/Alex Burstow Arsenal er enskur deildabikarmeistari kvenna í fótbolta eftir 1-0 sigur á Chelsea í úrslitaleik á Molineux leikvanginum í dag.
Úrslitin réðust ekki fyrr en í seinni hálfleik í framlengingu en sænska landsliðskonan Stina Blackstenius var hetja leiksins. Draumur Chelsea um að vinna fjórfalt á síðasta tímabili sínu undir stjórn Emmu Hayes er því úti en það er nóg af bikurum eftir fyrir liðið að vinna. Blackstenius skoraði eina markið á 116. mínútu eftir undirbúning frá Caitlin Foord. Það setti þó sinn svip á fagnaðarlæti Arsenal að Frida Maanum hneig niður í uppbótatímanum. Líðan hennar er stöðug og hún er með meðvitund. Þetta er annað árið í röð sem Arsenal vinnur Chelsea í úrslitaleik enska deildabikarsins en liðið vann 3-1 í fyrra. Þetta er í sjöunda sinn sem Arsenal vinnur þennan titil sem er það mesta í sögunni. Mayra Ramirez hélt hún hefði komið Chelsea yfir á 22. mínútu leiksins en markið var dæmt af með hjálp myndbandsdómgæslu. Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma og ekki heldur í fyrri hálfleik í framlengingunni. Það leit hins vegar dagsins ljós þegar það voru fjórar mínútur í vítakeppni. Hin kanadíska-íslenska Cloé Eyja Lacasse var í byrjunarliði Arsenal og spilaði fyrstu 72 mínútur leiksins. WE ARE THE ARSENAL. WE ARE THE CONTI CUP CHAMPIONS! pic.twitter.com/vgNXoPQUcL— Arsenal Women (@ArsenalWFC) March 31, 2024
Enski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira