Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Jakob Bjarnar skrifar 31. maí 2024 11:24 Mæðgurnar Ragnheiður Harpa og Íris Anna. Lífið leikur nú við þær eftir langa og erfiða viðureign við einelti í Stykkishólmi, sem stóð í mörg ár. aðsend Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir ritar afar athyglisverða grein um einelti sem dóttir hennar Íris Anna mátti sæta á Stykkishólmi. Fjölskyldan flutti í febrúar til Akraness og við það eitt leystust ýmsir hnútar sem höfðu virst óleysanlegir. „
Hún fór til Patreksfjarðar. Við vorum farin að finna að þetta var að hafa áhrif á son okkar, orðsporið hafði áhrif á hann, hann var útilokaður þannig að við ákváðum að flytja,“ segir Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir. Ragnheiður Harpa segir að erfitt hafi verið að skrifa greinina og senda hana út. Hún beinist að litlu samfélagi, allir viti um hvern er verið að tala. „Margir sem lesa þetta þar sem hugsanlega mun ekki líða vel í dag, en ef maður þorir ekki og gerir ekki þá breytist lítið.“ Og þegar hún bar skrifin undir dóttur sína var hún fljót að samþykkja skrifin og sagði meira að segja: Þú setur mynd af okkur saman við myndina. Hún er svo hugrökk.“ Dóttir hennar er sem sagt á Patreksfirði, útskrifaðist þaðan úr 10. bekk og ætlar að vinna þar í sumar. Ragnheiður Harpa er þar stödd núna en kemur heim á Akranes eftir helgi. Skrítið að tala um heim á Akranes þegar menn hafa verið Hólmarar í húð og hár nánast allt sitt líf. Var sjálf kennari við skólann Ragnheiður Harpa segir eineltið hafa staðið lengi og hún lýsir því í greininni. „Það kom nýr skólastjóri á síðasta ári og hann er algjör snillingur, við vorum ánægð með hann og hans stuðning. En þetta var búið að ganga á í nokkur ár og við vorum komin á endapunkt.“ Víða er fallegt í Stykkishólmi en þar, eins og víðar, þrífst einelti. Erfitt ætlar að reynast að ná tökum á því flókna vandamáli.vísir/jóhann k Hún segir það sína skoðun að ekki sé nógu mikið gert í þessum málum. Og þó einelti hafi alltaf verið á dagskrá, í raun allt frá átaksverkefni Stefáns heitins Karls leikara er hann stofnaði samtökin Regnbogabörn upp úr aldamótum, þá séu þessi mál alltaf jafn erfið viðfangs. „Mín samtöl við skólastjóra einkenndust af ráðaleysi; hvað viltu að við gerum? Og maður átti einhvern veginn að finna lausnirnar á þessu. En þetta eru tilfinningar sem verið er að tala um og maður verður úrræðalaus. Við gerðum ótrúlega margt og höfðum tækifæri á að gera ýmislegt sem aðrir hafa ekki.“ Ragnheiður vísar í því til þess að sjálf var hún kennari við skólann. „Það er mjög krefjandi að vera starfsmaður í þessum skóla, kenna þessum börnum og þá þurfti maður að skipta sér í tvennt milli þess að vera móðir og kennari. Og fyrir kennara eru svona mál gríðarlega erfið og ekki hægt að leysa bara í skólanum. Það verður að setja meiri ábyrgð á samfélagið og svo foreldrahópinn. Það reyndist okkur erfitt að fá ekki áheyrn hjá skólanum og svo var hunsun foreldra.“ Eignaðist samstundis vini á Patró Ragnheiður Harpa segir að foreldrarnir hafi vitaskuld hlustað á eigin börn sem vitaskuld vörðu sig sjálf út í eitt. Og það var tekið trúanlegt. „Við áttum erfið samskipti við foreldra en samt allir af vilja gerðir á yfirborðinu.“ Umskiptin þegar komið var á Skaga og á Patreksfirði færðu fjölskyldunni heim sanninn um að þetta hafi í raun ekki verið þeirra vandamál. Eins og þau voru jafnvel farin að trúa. „Hún var bara samþykkt af hópnum alveg um leið. Eignast vini strax og kærasta eftir tvær vikur og er enn með honum. Það hefur gengið svakalega vel á Patró.“ Og einnig var tekið vel á móti Magnúsi syni þeirra á Skaganum. „Hann var ófeiminn við að segja af hverju við værum þarna komin. Og hann er bara að slá í gegn á Akranesi.“ Ragnheiður Harpa segir þetta því augljóslega eitthvað mein sem hafi byggst upp með árunum. „Þau áttu alveg vini en þegar maður var að benda á þennan samskiptavanda gerðist lítið. Ef það hefði verið hlustað og gert eitthvað í þessu, bæði hjá foreldrum og skóla, þá hefði þetta ekki þurft að fara svona.“ Fóru alla leið með málið Í greininni er því lýst að Kvan hafi komið og greint stöðuna. „Við fórum alla leið með þetta og drógum meira að segja bæjarstjórann inn í þetta. Þær hjá Kvan greindu þetta og mátu sem einelti. Og þá sagði skólastjórinn, með semingi, að það væri kannski hægt að tala um einelti.“ Þó Ragnheiður Harpa gagnrýni skólastjórann segir hún að það veitist henni erfitt að tala illa um. „Hún var minn yfirmaður og ágætis kona en það voru aðrir hlutir sem skiptu meira máli og einfaldara að ráðast í að leysa. Og þá sleppir maður hinu. Eineltismál eru erfið og flókin viðureignar. Önnur verkefni sitja fyrir.“ Ragnheiður Harpa segist ekki erfa þetta við hana. Markmiðið með greininni er ekki endilega að segja sína persónulegu sorgarsögu heldur benda á hvað sé hægt að gera og gera betur. „Viðurkenna einelti og taka afstöðu með þeim sem líður illa.“
Stykkishólmur Akranes Vesturbyggð Ofbeldi gegn börnum Stafrænt ofbeldi Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Innlent Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Hungursneið á Gasa, strokulaxar og metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Áfall fyrir RIFF Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Sjá meira