Öruggur sigur Sviss í fyrsta leik Siggeir Ævarsson skrifar 15. júní 2024 12:31 Kwadwo Duah fagnar fyrsta marki leiksins af innlifun en þetta var jafnframt fyrsta landsliðsmark hans og aðeins hans annar leikur. vísir/Getty Svisslendingar byrja Evrópumótið á öruggum sigri 3-1 á Ungverjalandi. Fyrir leikinn höfðu Ungverjar ekki tapað keppnisleik síðan haustið 2022 en liðið tapaði ekki leik í undankeppninni. Þeir voru afar ólíkir sjálfum sér framan af leik og komust varla af eigin vallarhelmingi. Attila Fiola sýnir loftfimleikavísir/Getty Kwadwo Duah kom Sviss yfir strax á 12. mínútu en þetta var hans fyrsta landsliðsmark og aðeins hans annar landsleikur. Rétt fyrir hálfleik kom Michel Aebischer Svisslendingum svo í 2-0 með góðu skoti fyrir utan teig en þetta var jafnframt hans fyrsta landsliðsmark. Michel Aebischer skorar sitt fyrsta landsliðsmark og kemur Sviss í 2-0vísir/Getty Ungverjar voru öllu hressari í seinni hálfleik en þeir hafa eflaust fengið orð í eyra frá þjálfara sínum, Murat Yakin, í klefanum í hálfleik. Mark frá þeim lá í loftinu og eftir nokkur góð færi hjá Barnabás Varga minnkaði hann muninn á 66. mínútu þar sem hann var vel staðsettur eftir fyrirgjöf og skallaði boltann hárnákvæmt í markið. Barnabas Varga óð í færum í seinni hálfleik og uppskar eitt markvísir/Getty Ungverjar settu mikinn kraft í að reyna að jafna leikinn sem þýddi að varnarleikur liðsins varð brothættur sem Svisslendingar færðu sér í nyt með skyndisóknum. Ein slík bar ávöxt á 94. mínútu þegar varamaðurinn Bendegúz Bolla kom boltanum í netið. Niðurstaðan nokkuð sanngjarn 3-1 sigur Sviss en Ungverjar náðu ekki að sýna sitt rétta andlit nema í stutta stund í dag. EM 2024 í Þýskalandi
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti