
Íslenskir golfvellir eiga það sameiginlegt að náttúrufegurðin er allt um kring. Hamarsvöllur í Borgarnesi er þar engin undantekning með töfrandi fjallasýn og gróið umhverfi. Hamarsvöllur er 18 holu skóga- og vatnavöllur sem gerir hann fjölbreyttan og skemmtilegan til að spila. Hver hola hefur sinn karakter og mikill metnaður er lagður í umhirðu vallarins svo brautir og flatir eru í frábæru standi.

Völlurinn er mjög góður fyrir kylfinga á öllum getustigum, frá byrjendum til atvinnukylfinga. Þar er góð æfingaaðstaða og meðal annars að finna púttsvæði bæði við gamla bæinn og Hótel Hamar og svo æfingasvæði fyrir neðan gamla bæinn þar sem hægt er að æfa stuttu og löngu höggin.
Bæði heimamenn og gestir eru duglegir að sækja völlinn. Hamrasvöllur nýtur þess að vera í þægilegri akstursfjarlægð frá Reykjavík en stór meirihluti gesta kemur frá höfuðborgarsvæðinu eða nágrannaklúbbum.

Hótel Hamar er staðsett á vallarsvæðinu og er Golfklúbbur Borgarness í nánu samstarfi við hótelið. Þar geta gestir vallarins slakað á eftir golfhring og gert vel við sig í mat og drykk. Aðstaðan er glæsileg og meðal annars hægt að sitja út á verönd og njóta útsýnisins.