Enn hætta á vatnavöxtum en dregur úr rigningunni Kjartan Kjartansson og Telma Tómasson skrifa 29. júlí 2024 07:30 Frá Þórsmörk. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Dregið hefur úr rigningu á sunnanverðu landinu en enn má búast við vatnavöxtum í Þórsmörk og nágrenni vegna hennar. Vatnsmagn jókst í ám á svæðinu í nótt samkvæmt mælitækjum og gæti haldið áfram í dag á þeim svæðum sem Veðurstofan telur ástæðu til að fylgjast með á Suðurlandi, Suðausturlandi og miðhálendinu.
Rign hefur á sunnanverðu landinu frá því síðdegis í gær. Enn er úrkomuspá á svæðinu en útlit fyrir að stytti upp þegar líður á daginn, ef spákort reynast rétt. Skilaboð til ferðamanna eru að fylgjast grannt með og fara varlega. Lægðin sem olli úrkominni er nú stödd skammt suðvestur af landinu og sendir áfram rigningu af og til yfir landið sunnanvert í dag, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Á höfuðborgarsvæðinu er spáð sunnan 5-10 metrum á sekúndu í dag með stöku skúrum en lægja á seinni patinn. Í öðrum landshlutum ætti að rofa til þegar líður á daginn og mögulega sjást til sólar. Enn er þó möguleiki á stöku skúrum. Vindur á að ganga niður víða síðdegis og hlýjast verður norðaustanlands þar sem hitinn gæti náð allt að tuttugu stigum. Hægri vestlægri átt er spáð á landinu á morgun með víða skýjuðu og smávægis vætu á víð og dreif. Besta veðrinu er spáð á suðaustanverðu landinu, þurru og björtu með hita allt að átján stigum.
Veður Mest lesið Miðflokkur rýkur upp en Sjálfstæðisflokkur dalar Innlent Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Hvar er Khamenei? Erlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Innlent Búast má við töluverðum dembum Veður Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira