Innlent

Féll af hesti og var án með­vitundar

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Miklar umferðartafir eru við Kirkjubæjarklaustur.
Miklar umferðartafir eru við Kirkjubæjarklaustur. Vísir

Miklar umferðartafir eru við Kirkjubæjarklaustur vegna slyss sem varð á þriðja tímanum í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á vettvangi ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum.

Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er maðurinn á sjötugsaldri. Maður hafi fallið af hesti, og verið meðvitundarlaus á eftir. Ekki er vitað hvernig hann missti meðvitund.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er verið að hlúa að manneskjunni fyrir utan veginn.

Þyrla Landhelgisgæslunnar er á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×