Mótmæla við veitingastaðinn Ítalíu vegna meints launaþjófnaðar Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. september 2024 19:02 Fulltrúar Eflingar mótmæla fyrir utan veitingastaðinn Ítalíu á Frakkastíg nú í kvöld. Vísir/Vilhelm Stéttarfélagið Efling stendur í kvöld fyrir mótmælum við veitingastaðinn Ítalíu vegna meintra brota Elvars Ingimarssonar, eiganda og rekstraraðila Ítalíu, gegn starfsfólki staðarins. Eflingarfélagar tóku upp mótmælastöðu fyrir framan staðinn klukkan sjö og ætla að dreifa dreifimiðum um framferði Elvars og ræða við gesti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. Þar segir að hátt í fjörutíu Eflingarfélagar hafi leitað til félagsins vegna aðskilinna kjarasamningsbrota og launaþjófnaðar á veitingahúsum í rekstri Elvars. Starfsmenn hafi verið hlunnfarnir varðandi launagreiðslur vegna dagvinnu, yfirvinnu og vinnu á rauðum dögum. Sömuleiðis séu dæmi um að starfsmenn hafi fengið greidd laun undir taxta. Iðulega hafi laun verið greidd of seint, aðeins að hluta eða alls ekki. Gestur á Ítalíu gægist út um glugga á mótmælendur á vegum Eflingar.Vísir/Vilhelm „Fyrrverandi starfsmenn veitingahúsa í rekstri Elvars Ingimarssonar, auk stjórnar og trúnaðarráðs Eflingar stéttarfélags og annarra Eflingarfélaga, munu í kvöld vekja athygli gesta veitingahússins Ítalíu á þessu framferði eiganda og rekstraraðila staðarins,“ segir í tilkynningunni. Það muni þau gera með því að taka upp mótmælastöðu fyrir framan veitingahúsið á Frakkastíg, dreifa þar dreifimiðum með upplýsingum um framferði rekstraraðilans og ræða við gesti. Elstu mál nái tvö ár aftur í tímann „Tugir mála eru til meðferðar hjá vinnuréttarsviði Eflingar á hendur félögum Elvars Ingimarssonar og sjö hafa verið send áfram til lögfræðiþjónustu. Elstu málin sem komið hafa inn á borð stéttarfélagsins eru frá því í ágúst 2022 og hafa Eflingarfélagar leitað til vinnuréttarsviðs fram á þennan dag vegna sambærilegra brota,“ segir einnig í tilkynningunni. Þá segir að alla jafna séu ekki gerðir skriflegir ráðningarsamningar við fólk sem hefur störf á veitingahúsum sem Elvar Ingimarsson rekur. Þá fái starfsmenn sjaldan eða ekki afhenta launaseðla eða tímaskráningar. Ítrekuð vanskil hafi verið á greiðslum iðgjalda til stéttarfélagsins og dæmi séu um að ekki hafi verið staðin skil á staðgreiðslu af launum Eflingarfélaga, eða gengið hafi verið gegn óskum þeirra um nýtingu persónuafsláttar. Þannig hafi Eflingarfélaginn Erik Krištovčo setið uppi með ríflega hálfrar milljóna króna skattaskuld þegar hann lét af störfum á veitingastaðnum Il Antico vegna framgöngu atvinnurekendanna. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, með gjallarhorn á lofti á mótmælunum í kvöld.Vísir/Vilhelm Viðurkenndi að launin hefðu ekki verið greidd Vitalii Shybka starfaði á veitingahúsinu Ítalíu og lýsir því að hafa þurft að slá lán hjá vinum til að greiða leigu vegna þess að laun hans voru ekki greidd. „Þetta hafði allt mjög vond áhrif á líf mitt. Vegna þessara fjárhagsvandræða komu brestir í samband mitt við kærustu mína sem ollu því að endingu að sambandinu lauk. Ég fann ekki aðra vinnu um töluvert langan tíma sökum þess að ég varð þunglyndur og neyddist til að sækja mér aðstoð fagfólks,“ er haft eftir Vitalii í tilkynningu frá Eflingu. Samstöðin fjallaði 18. maí um mál Salome Berelidze, sem áður starfaði á Ítalíu á Frakkarstíg, sem sakaði veitingastaðinn og móðurfélagið Opera Service ehf. um launaþjófnað. Hún birti færslu í Facebook-hópnum „Vinna með litlum fyrirvara“ þar sem hún lýsti erfiðleikum sínum við að innheimta laun frá janúar, þegar hún byrjaði í hlutastarfi á staðnum. Hún sagðist ítrekað hafa óskað eftir launaseðlum en einungis fengið að sjá tímaskráningar á skjá og aldrei nein formleg gögn. Færsla Salomear inni á „Vinna með litlum fyrirvara“. Hún hafi reynt að ræða við Elvar um launin en hann vísað henni áfram til endurskoðanda fyrirtækisins. Salome greindi frá því að eftir umfjöllun Samstöðvarinnar um málið hafi loksins fengið útborguð útistandandi laun. Elvar viðurkenndi þá í samtali við Mannlíf að laun hefðu ekki verið greidd en það hafi verið vegna tæknilegra vandamála og aukins launakostnaðar.
Stéttarfélög Veitingastaðir Reykjavík Kjaramál Deilur Eflingar og Ítalíu Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira