Frábær endasprettur hjá Veca gerði út af við Hött Þórarinn Þórarinsson skrifar 18. september 2024 12:22 Lið Veca kom, sá og sigraði Hött með góðum endaspretti í þriðja leik liðanna í gærkvöldi. Þriðja umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hófst í gærkvöld með tveimur leikjum þar sem Veca sigraði Hött 2-1 og Ármann lagði lið RAFÍK 2-0. Með sigrinum í gær komst Veca í annað sæti deildarinnar en þegar þrír leikir eru eftir í umferðinni er Ármann í fyrsta sæti og Dusty í því þriðja.
Tómas Jóhannsson og Jón Þór Hermannsson lýstu viðureign Veca og Hattar í beinni útsendingu og voru í upphafi algerlega á öndverðum meiði þar sem Tómas spáði Veca sigri en Jón Þór veðjaði hiklaust á Hött. Báðir töldu sig enn geta haft rétt fyrir sér þegar staðan var 1-1 fyrir þriðja og síðasta leikinn en í honum átti Höttur hins vegar litla möguleika og lýsendurnir voru sammála um að Veca hefði átt frábæran leik í lokakaflanum. Jón Þór lýsti einnig yfir talsverðum vonbriðgum með Hött þar sem hann hafði búist við miklu meira af liðinu. Höttur missti tökin á Veca í þriðja og síðasta korti viðureignar liðanna og varð að sætta sig við 2-1 tap í þriðju umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike. Umferðinni lýkur annað kvöld, fimmtudaginn 19. september, með þremur leikjum þar sem ÍA og Saga mætast, Dusty og Kano annars vegar og Venus og Þór hins vegar þar sem á brattann verður að sækja hjá Venus á móti Þórsurum sem hafa komið sterkir inn í upphafi móts. Staðan í Ljósleiðaradeildinni þegar þrír leikir eru eftir í 3. umferð.
Rafíþróttir Tengdar fréttir Þór byrjar Ljósleiðaradeildina með látum „Þetta var nú bara tiltölulega auðvelt,“ segir Ásmundur Viggósson, sem var í miklu stuði þegar Þór lagði Sögu í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld. 4. september 2024 14:38 Mest lesið „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sport Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Sport „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Körfubolti Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora Fótbolti Var að vinna maraþon en var þá meinaður aðgangur að markinu Sport Ekitiké fór grátandi af velli Enski boltinn Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Íslenski boltinn Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti
Þór byrjar Ljósleiðaradeildina með látum „Þetta var nú bara tiltölulega auðvelt,“ segir Ásmundur Viggósson, sem var í miklu stuði þegar Þór lagði Sögu í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld. 4. september 2024 14:38