Þægi­legt í Slóvakíu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gestirnir fagna einu marka sinna.
Gestirnir fagna einu marka sinna. EPA-EFE/JAKUB GAVLAK

Englandsmeistarar Manchester City lentu ekki í miklum vandræðum í Bratislava. Færa má rök fyrir því að leikurinn hafi verið búinn eftir stundarfjórðung en staðan var þá orðin 2-0 Man City í vil. Lokatölur 4-0 í leik þar sem lærisveinar Pep Guardiola fóru aldrei úr öðrum gír.

İlkay Gündoğan með fyrra markið á 8. mínútu og Phil Foden með annað markið eftir undirbúning Jérémy Doku þegar fimmtán mínútur voru liðnar. 

Ótrúlegt en satt voru mörkin ekki fleiri í fyrri hálfleik en snemma í þeim síðari skoraði Erling Haaland þriðja mark gestanna. James McAtee bætti við fjórða marki Man City á 74. mínútu og þar við sat, lokatölur 0-4.

Man City er með fjögur stig eftir tvo leiki en Englandsmeistararnir gerðu jafntefli við Inter í 1. umferð. Slovan Bratislava er án stiga og hefur fengið á sig níu mörk í leikjunum tveimur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira