Innlent

Segir fund ráð­herra og lög­reglu­stjóra til marks um spillingu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Björn Leví telur að eðlilegra hefði verið ef ríkislögreglustjóri hefði kynnt sína áætlun á blaðamannafundinum, og dómsmálaráðherra boðað sína stefnu sem frambjóðandi í kosningabaráttu, frekar en sem ráðherra.
Björn Leví telur að eðlilegra hefði verið ef ríkislögreglustjóri hefði kynnt sína áætlun á blaðamannafundinum, og dómsmálaráðherra boðað sína stefnu sem frambjóðandi í kosningabaráttu, frekar en sem ráðherra. Vísir/Einar

Stjórnarandstöðuþingmaður segir blaðamannafund ráðherra og lögreglustjóra bera vott um spillingu. Ný stefna og áætlun í landamæramálum voru kynntar á fundinum, þar á meðal áform um að koma á fót miðstöð við Keflavíkurflugvöll, þar sem hælisleitendur geta dvalið í allt að viku.

Nýrri stefnu stjórnvalda í landamæramálum er ætlað að efla landamæraeftirlit, auka viðbrögð við skipulagðri brotastarfsemi og tryggja mannúðlega móttöku og brottflutning hælisleitenda. Hún var kynnt á blaðamannafundi dómsmálaráðuneytisins og Ríkislögreglustjóra í gær, en þar var einnig kynnt landsáætlun um samþætta landamærastjórnun.

Meðal markmiða í stefnunni er að koma á fót greiningarmiðstöð við Keflavíkurflugvöll. Svökölluð móttökumiðstöð sem gegnir sams konar hlutverki er nú í miðborg Reykjavíkur.

„Ég tel afar brýnt að við séum með greiningarmiðstöð í nálægð við flugvöllinn, þannig að einstaklingar í þessari stöðu séu ekki komnir nokkrum klukkutímum eftir að þeir lenda, inn í íslensk samfélag. Heldur staldri þeir við,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra eftir fundinn í gær.

Margra mánaða vinna að baki

Gert sé ráð fyrir að fólk geti dvalið í miðstöðinni í allt að sjö sólarhringa.

„Og að það sé hægt að vísa fólki hratt til baka, ef það á ekki erindi hingað sem erfiði.“

Útfærsla á slíkri stöð liggi ekki fyrir að svo stöddu.

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri á blaðamannafundinum í gær.Vísir/Vilhelm

„En ég hafði gert mér vonir um það að við gætum opnað greiningarmiðstöð við Keflavíkurflugvöll strax á næsta ári.“

Kom ekki til greina að geyma þetta þangað til eftir kosningar og sjá hvernig færi?

„Eins og ég sagði áðan þá hófst þessi vinna fyrir mörgum mánuðum, það hafa margir komið að henni og Ríkislögreglustjóri hefur leitt þessa vinnu,“ sagði Guðrún.

Ráðherra hafi enga heimild til að kynna nýja stefnu

Þingmaður Pírata segir að fundurinn, sem boðaður var að frumkvæði dómsmálaráðuneytisins, hafi verið birtingarmynd spillingar.

Guðrún Hafsteinsdóttir er annars vegar í kosningabaráttu en hún er líka dómsmálaráðherra. Er eitthvað óeðlilegt að hún haldi fund með embættismanni á sínu málefnasviði um það sem heyrir undir hana?

„Ef hún þarf að sinna ákveðnum lögbundnum verkefnum, ekkert að því. Þetta er allt annað mál. Hér er verið að tala um stefnu til næsta kjörtímabils. Hún er ekki með heimild til að setja þá stefnu, ekki þegar kosningar eru að koma á okkur,“ segir Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.

Björn segir eðlilegra ef Ríkislögreglustjóri hefði kynnt sína áætlun, án aðkomu ráðherrans.

„Dómsmálaráðherra hefði síðan getað sem frambjóðandi á einhverjum framboðsfundum verið að tala um þessa stefnu. En það þær væru að gera það saman, það er bara alfgjör óþarfi.“


Tengdar fréttir

Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað

Íslensk stjórnvöld hafa markað nýja stefnu í landamæramálum sem ætlað er að efla landamæraeftirlit, auka viðbrögð við skipulagðri brotastarfsemi og tryggja mannúðlega móttöku og brottflutning hælisleitenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×