Dagsljósið hafi gleymst í þéttingu byggðar Lovísa Arnardóttir skrifar 18. desember 2024 23:41 Ásta segir dagsbirtuna nauðsynlega fyrir líkamlega og andlega heilsu fólks. Bylgjan Ásta Logadóttir, verkfræðingur hjá Lotu og sérfræðingur í birtu og lýsingu í húsum, segir dagsbirtuna oft gleymast þegar verið er að hanna hús. Hún fagnar nýrri reglugerðarbreytingu á byggingarreglugerð og óskar þess að nýr ráðherra taki hana föstum tökum.
Ásta segir alls ekki alla hönnuði vera með dagsbirtuna í huga þegar það er verið að hanna og dagsljósið hafi í raun gleymst í þéttingu byggðar. Ásta fór yfir málið í Reykjavík síðdegis í dag. „Það er svo sannarlega hægt að þétta byggð á góðan hátt. En við erum svolítið að gleyma okkur og regluverkið passar ekki upp á okkur nægilega vel.“ Ásta segir birtuna skipta miklu máli fyrir bæði andlega og líkamlega heilsu fólks. „Þú færð ekki nógu mikið af ljósi þegar við byrjum að byggja svona,“ segir Ásta um bygginguna sem byggð var í Álfabakka og skyggir á íbúðir Búseta við Árskóga. Hún segir að hægt sé að bregðast við með því að fara í raflýsingu en það sé plástur á opið sár. Ásta Logadóttir segir að í nágrannalöndum okkar séu reglugerðir þar sem kveðið er á um einhverjar ákveðnar kröfur um dagsbirtu og dagsljós þegar byggt er. Það sama gildi ekki á Íslandi. Það standi þó til að breytast því í samráðsgátt sé núna tillaga að breytingu á byggingarreglugerð þar sem talað er um ljósvist og útsýni. Samráði er lokið samkvæmt samráðsgáttinni og er gert ráð fyrir því að breytt reglugerð öðlist gildi 1. mars á næsta ári samkvæmt heimasíðu samráðsgáttarinnar. Ásta segir með þessu nýjan kafla koma í reglugerðina þar sem kveðið er á um bæði ljósvist og útsýni. Það séu gerðar kröfur um dagslýsingu en líka tekið á ljósmengun og raflýsingu og mörgu öðru. Vantar leiðbeiningar með reglugerðinni Aðalbreytingin sé samt að það komi krafa um dagsljós í byggingarreglugerð. „Þannig við munum ekki geta byggt svona rosalega þétt og rosalega hátt og framfylgt þessum kröfum sem standa þarna.“ Reglugerðarbreytingin var lögð fram af Svandísi Svavarsdóttur sem innviðaráðherra en Sigurður Ingi Jóhannsson gegnir því embætti þar til ný ríkisstjórn tekur við. Ásta segir algert lykilatriði að nýr ráðherra klári málið. Það séu ekki til neinar leiðbeiningar eins og stendur og það þurfi að bæta þeim við svo fólk viti hvernig það eigi að vinna samkvæmt þessum nýju reglum. „Það er ekki neitt til og 1. mars er bara á morgun því tíminn líður svo hratt,“ segir Ásta og það sé áríðandi að nýr ráðherra geri þetta vel. Ásta segist hafa mikla ástríðu fyrir þessum málefnum. Hún hafi fyrst fengið áhuga á þessu í sumarstarfi hjá Orkuveitunni og hafi verið fengin til að hanna götulýsingu. Hún hafi séð það þegar hún svo fór út að ganga hversu miklu máli það skipti hversu nálægt þeir voru og hvernig birtan væri. Þegar hún hafi farið í framhaldsnám hafi hún skoðað þetta nánar. Svo um aldamót hafi farið að koma fram fræðigreinar um hvaða áhrif birta hefur á fólk heilsufarslega. Orkuminni og þyngri á veturna á Íslandi „Svo búum við bara á landi sem er svo mikið myrkur á veturna,“ segir Ásta og að hún þekki það af sjálfri sér á veturna að vera til dæmis orkuminni og þyngri í skapi. „Þetta er mér mikið hjartans mál.“ Ásta segir að breytingin á reglugerðinni muni líklega hafa einhver áhrif á það hvernig hér er byggt. Hefði hún verið til komin þegar til dæmis Valshverfið var byggt upp væri líklega að lengra væri á milli bygginga. Dagsbirtan komist vel að í inngörðum þar en annað sé að segja um götumyndina. „Ef við hefðum haft þessar reglur þá, þegar þetta hverfi var að koma upp, hefði líklega götumyndin verið mun breiðari þannig ljósið kæmist betur að íbúðum á neðstu hæð og íbúðum í hornum,“ segir hún og að íbúðir í hornum séu oft útsettari en aðrar fyrir lélegum birtuskilyrðum. Hægt er að hlusta á viðtalið við Ástu í heild að ofan.
Tíska og hönnun Skipulag Reykjavík Vöruskemma við Álfabakka Arkitektúr Húsnæðismál Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Vöruhúsið ekki hannað af arkitekt „Arkitektar eru sérmenntaðir í að hanna út frá þörfum manneskjunnar á fagurfræðilegum grundvelli, en það er mikill misskilingur að halda að þeir einir komi að mótun borgarumhverfisins. Það gera einnig byggingarfræðingar, byggingatæknifræðingar, verkfræðingar, landslagsarkitektar og fleiri.“ 17. desember 2024 20:47 Búseti sættir sig ekki við vöruhúsið Húsnæðissamvinnufélagið Búseti sættir sig ekki við stærðarinnar vöruhús sem reist var fáum metrum frá fjölbýlishúsi í þeirra eigu. Framkvæmdastjórinn segir stjórnendur munu funda með lögmanni sínum á morgun. 15. desember 2024 15:31 Einkaframtakinu sé ekki alltaf treystandi fyrir miklu svigrúmi í skipulagi Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata segir augljóst að einkaframtakinu hafi ekki verið treystandi fyrir rúmum skipulagsheimildum í Breiðholti. Þess vegna séu reglur og kvaðir á skipulag mikilvægar. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir reglur of strangar en tekur þó fram að mikilvægt sé að borgin hafi afskipti þegar það varði heildarhagsmuni. 15. desember 2024 14:25 Mest lesið Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Innlent Bílstjórinn þrettán ára Innlent Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg Innlent Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Erlent Fyrrverandi landgönguliði drap að minnsta kosti fjóra í Michigan Erlent „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ Innlent „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Innlent Adams hættir og Cuomo og Mamdani skiptast á skotum Erlent Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Innlent Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign Innlent Fleiri fréttir Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Bein útsending: Lýðheilsuvísar 2025 kynntir Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Play hættir að fljúga, hundruð missa vinnuna og strandaglópar í Leifsstöð Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Fara yfir stöðuna vegna Play og skipuleggja sig Bílstjórinn þrettán ára Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Allt niður í þriggja mánaða fiðluleikara „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Sjá meira
Vöruhúsið ekki hannað af arkitekt „Arkitektar eru sérmenntaðir í að hanna út frá þörfum manneskjunnar á fagurfræðilegum grundvelli, en það er mikill misskilingur að halda að þeir einir komi að mótun borgarumhverfisins. Það gera einnig byggingarfræðingar, byggingatæknifræðingar, verkfræðingar, landslagsarkitektar og fleiri.“ 17. desember 2024 20:47
Búseti sættir sig ekki við vöruhúsið Húsnæðissamvinnufélagið Búseti sættir sig ekki við stærðarinnar vöruhús sem reist var fáum metrum frá fjölbýlishúsi í þeirra eigu. Framkvæmdastjórinn segir stjórnendur munu funda með lögmanni sínum á morgun. 15. desember 2024 15:31
Einkaframtakinu sé ekki alltaf treystandi fyrir miklu svigrúmi í skipulagi Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata segir augljóst að einkaframtakinu hafi ekki verið treystandi fyrir rúmum skipulagsheimildum í Breiðholti. Þess vegna séu reglur og kvaðir á skipulag mikilvægar. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir reglur of strangar en tekur þó fram að mikilvægt sé að borgin hafi afskipti þegar það varði heildarhagsmuni. 15. desember 2024 14:25