Innlent

Súða­víkur­hlíð opin á ný

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Úr vefmyndavél Vegagerðarinnar við Súðavíkurhlíð klukkan 14:25.
Úr vefmyndavél Vegagerðarinnar við Súðavíkurhlíð klukkan 14:25. SKJÁSKOT

Búið er að opna veginn á milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Vegurinn hefur verið lokaður vegna mikillar snjóflóðahættu.

Nokkur snjóflóð hafa fallið á veginn á milli bæjanna tveggja og hefur vegurinn því verið að mestu leiti lokaður síðustu daga.

Á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is, kemur fram að vegurinn sé á óvissustigi og snjóflóðahætta talin umtalsverð.

Á bloggsíðu ofanflóðarvaktar Veðurstofu Íslands segir að þriggja metra þykkt snjóflóð hafi fallið á veginn í nótt. Þá féllu einnig snjóflóð aðfaranótt 26. desember. 

Þá geti snjóflóðahættan aukist á morgun en spáð er hvassri norðurátt með snjókomu og skafrenningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×