Veður

Tals­vert frost en ró­legt veður þegar nýtt ár gengur í garð

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Það verður stillt veður í kvöld og því líkur á mikilli mengun af völdum flugelda.
Það verður stillt veður í kvöld og því líkur á mikilli mengun af völdum flugelda. Vísir/Egill

Veðurstofan spáir því að þegar nýtt ár gengur í garð verði kalt og rólegt veður víðast hvar á landinu. Því sé hætt við talsverðri flugeldamengun. Á nýársdag verði fremur hæg norðlæg átt, víða bjart og kalt veður.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði minnkandi norðaustlæg átt í dag, gola eða kaldi síðdegis. Spáð er fimm til þrettán m/s og snjókomu með köflum en hvassara syðst. 

Svona verður veðrið um kvöldmatarleytið í kvöld.Veðurstofan

Snjókomubakki yfir Suðurlandi þokist nú til vesturs og líkur á snjókomu á suðvesturhorninu fyrir hádegi. Styttir upp og léttir víða til seinnipartinn, en áfram dálítil él norðan- og austantil. 

Talsvert frost, um fjögur til 21 stig og kaldast inn til landsins.

Eins og sjá má verður ansi kalt á miðnætti þegar 2025 tekur við af 2024.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Vestan fimm til þrettán m/s og víða él, en bjart með köflum á Suðausturlandi. Frost núll til tíu stig, minnst við suðurströndina. 

Á föstudag: Breytileg átt, þrír til tíu m/s og él víða um land, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Áfram svalt í veðri. 

Á laugardag: Fremur hæg norðlæg átt og lítilsháttar él, en léttir til sunnan heiða og herðir á frosti.

Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir kalda norðanátt með éljum, en bjartviðri sunnantil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×