Innlent

Hér eru brennurnar á höfuð­borgar­svæðinu

Kristín Ólafsdóttir og Magnús Jochum Pálsson skrifa
Hér má sjá kort yfir áramótabrennurnar sem verða haldnar í kvöld.
Hér má sjá kort yfir áramótabrennurnar sem verða haldnar í kvöld. Grafík/Sara

Fjórtán áramótabrennur verða tendraðar á höfuðborgarsvæðinu í dag, fjórum fleiri en útlit var fyrir í haust. Þá gæti stórkostleg norðurljósasýning veitt flugeldum samkeppni á himni í kvöld.

Hér fyrir ofan má sjá staðsetningarnar á Reykjavíkurbrennunum sem tendraðar verða í kvöld; átta eru flokkaðar sem „litlar“ en tvær stórar, sem staðsettar eru á Geirsnefi og í Gufunesi. 

Engar áramótabrennur verða í Hafnarfirði og Kópavogi en Seltirningar fá sína brennu á Valhúsahæð. Í Garðabæ verða svo tendraðar tvær brennur í kvöld og í Mosfellsbæ verður brenna við Leirvoginn venju samkvæmt - hún verður þó tendruð öllu fyrr en hefðin býður, eða klukkan hálf fimm síðdegis. Þá verða einnig áramótabrennur í helstu þéttbýliskjörnum á landsbyggðinni, sem finna má upplýsingar um á síðum sveitarfélaganna.

Norðurljósaveisla í vændum?

En það verða ekki bara áramótabrennur og flugeldar sem lýsa upp síðasta kvöld ársins. Náttúran gæti líka boðið upp á rosalega sýningu.

„Það gæti orðið mjög falleg norðurljósasýning á himni um svipað leyti. Það er ákveðin óvissa í því, þessa stundina er ský á leiðinni til okkar á ógnarhraða og spurningin er bara hvenær það skellur á okkur. Er það seinnipart þessa dags eða í kvöld, eða hugsanlega eftir miðnætti. Og mögulega líka geigar það. Þannig að það er smá spenningur og óvissa í því,“ segir Stjörnu-Sævar.

Sævar Helgi segir óvissu ríkja með hvort ský muni hylja norðurljósin eða ekki í kvöld.Stöð 2

Ef bestu spár gangi eftir ætti að sjást jafnvel til norðurljósanna á öllu landinu. En ef þau birtast á sama tíma og flugeldasýningin stendur sem hæst í kringum miðnætti - er þá nokkur von að glitti í þau? Það fer eftir því hvar maður er staðsettur, segir Sævar.

„Ef maður er inni í mesta gosmekkinum eða sprengjuregninu þá eflaust mun mökkurinn birgja sýn að einhverju leyti. En ég vona bara að fólk gangi hægt um gleðinnar dyr og haldi pínu aftur af sér, líka bara fyrir lungun okkar, og njóti þess líka sem himininn hefur upp á að bjóða og sprengi kannski aðeins minna,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×