Innlent

Eyddu tundur­duflinu á botni Eyja­fjarðar

Kjartan Kjartansson skrifar
Vatn gýs upp þar sem Landhelgisgæslan sprengdi gamalt tundurdufl sem kom í veiðarfæri togarans Bjargar EA á Akureyri miðvikudaginn 8. janúar 2025.
Vatn gýs upp þar sem Landhelgisgæslan sprengdi gamalt tundurdufl sem kom í veiðarfæri togarans Bjargar EA á Akureyri miðvikudaginn 8. janúar 2025. Landhelgisgæslan

Tundurdufli sem togari kom með til Akureyrar í gær var grandað í Eyjafirði í hádeginu. Kafarar köfuðu að tundurduflinu til þess að undirbúa eyðingu þess í morgun.

Togarinn Björg EA fékk tundurduflið í veiðarfæri sín og kom með það til hafnar á athafnasvæði Útgerðarfélags Akureyrar í gær. Hluti hafnarsvæðisins var rýmt í varúðarskyni.

Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar fór með tundurduflið, sem vó hátt í 150 kíló, og kom því fyrir á því sem er lýst sem öruggu dýpi á hafsbotni í Eyjafirði strax í gær. Ætlunin var að eyða því við birtingu í dag, að því er kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Kafarar á ísilögðum Eyjafirði í morgun.Landhelgisgæslan

Björgunarsveitin Súlur veittu Gæslunni liðsinni við undirbúning í morgun. Kafað var að tundurduflinu og það svo sprengt um klukkan eitt í dag. Aðgerðin er sögð hafa gengið vel.

Hvetur Landhelgisgæslan áhafnir skipa og báta til þess að hafa samband við stjórnstöð Gæslunnar fái þær torkennilega hluti í veiðarfæri sín.

Kafari í sjónum í Eyjafirði í morgun. Landhelgisgæslan

Tengdar fréttir

Götulokanir á Akureyri vegna tilfærslu sprengjunnar

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ráðist í götulokanir við Hjalteyrargötu og Fiskitanga á Akureyri vegna tilfærslu sprengju sem togarinn Björg EA kom með til hafnar við athafnasvæði Útgerðarfélags Akureyrar í dag.

Togari kom með sprengju til hafnar á Akur­eyri

Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar er á leið til Akureyrar vegna tundurdufls sem togarinn Björg EA kom með til hafnar við athafnasvæði Útgerðarfélags Akureyrar í dag. Bryggjusvæðið var rýmt og vinnslu í fiskvinnsluhúsi hætt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×