„Þetta eru allt Keflvíkingar“ Smári Jökull Jónsson skrifar 27. janúar 2025 22:31 Anna Ingunn með boltann. Vísir/Diego Lið Keflavíkur í Bónus-deild kvenna var rætt í þættinum Bónus Körfuboltakvöld eftir sigur liðsins á Hamar/Þór. Systrabönd innan liðsins voru sérstaklega tekin fyrir.
Systurnar Agnes María og Anna Ingunn Svansdóttir áttu góðan leik þegar Keflavík lagði Hamar/Þór í síðustu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Hörður Unnsteinsson, Ólöf Helga Pálsdóttir og Helena Sverrisdóttir fóru yfir frammistöðu Keflavíkur í þættinum Bónus Körfuboltakvöld. „Mér fannst hún koma Keflavík inn í leikinn þegar Hamar/Þór byrjaði á sterku áhlaupi. Þegar Agnes kom inn á þá náði hún að slökkva í þeim, hún er góð skytta. Gaman að sjá systur með mismunandi skot, það eru tvenn pör af systrum þarna.“ „Þær eru svolítið að stóla á þetta“ Keflavík hefur verið þekkt fyrir gott uppeldisstarf í kvennaboltanum og á dögunum réði liðið tvo heimamenn til að stýra liðinu út tímabilið, þá Sigurð Ingimundarson og Jón Halldór Eðvaldsson. „Mér finnst það sjarmerandi við þetta lið, þetta eru allt Keflvíkingar. Ég hitti Sigga Ingimundar og hann var bara eitt bros og sagði að þetta væri svo gaman.“ Klippa: Bónus Körfuboltakvöld kvenna - Systurnar úr Keflavík Helena Sverrisdóttir fór yfir sóknarleik Keflavíkur en liðið tók þrjátíu og sjö þriggja stiga skot í leiknum. „Þetta er mjög hæfileikaríkt lið. Anna Ingunn er ekkert að gera þetta í fyrsta skipti í ár. Þær hafa svolítið lifað á þessu. Thelma kláraði helling í úrslitunum í fyrra þegar hún var að setja þristana. Þær eru með þannig sett upp lið núna, það er enginn miðherji til að „pósta“ upp á. Þær eru svolítið að stóla á þetta.“ Alla umræðu Harðar, Ólafar Helgu og Helenu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Körfuboltakvöld Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira