Innlent

Misstu stýrið og rak ná­lægt landi

Atli Ísleifsson skrifar
Björgunarskipið kom til hafnar í Rifi nú skömmu fyrir klukkan 7 með fiskibátinn í togi.
Björgunarskipið kom til hafnar í Rifi nú skömmu fyrir klukkan 7 með fiskibátinn í togi. Landsbjörg

Björgunarsveitarmenn í Rifi á Snæfellsnesi voru kallaðir út í morgun vegna fiskibáts með tvo um borð sem hafði misst stýrið og rak nálægt landið.

Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi kallað út áhöfn björgunarskipsins Björgu rétt upp úr klukkan fimm í morgun.

„Fiskibáturinn var þá staddur rétt undan Svörtuloftum og rak í norður meðfram landi, aðeins um hálfa sjómílu frá landi. Um 15 mínútum eftir að áhöfnin var kölluð út, klukkan 5:20, var Björg lögð úr höfn og hélt áleiðis á vettvang. Björg var komin að bátnum rúmum 20 mínútum síðar og hófust strax aðgerðir við að koma togi á milli skipanna.

Það gekk vel og rétt fyrir 6 var komin taug á milli og Björgin byrjuð að draga stýrislausa bátinn,“ segir í tilkynningunni.

Skipunum er nú siglt í átt að Rifi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×