„Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt“ Lovísa Arnardóttir skrifar 30. janúar 2025 23:28 Það er betra að vera vel skóaður og klæddur ef fólk ætlar að vera fótgangandi á morgun og um helgina. Vísir/Vilhelm Gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir landið allt á morgun. Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að mikil úrkoma og hláka geti valdið vatnavöxtum, krapaflóðum og skriðuhættu, sérstaklega á Suður – og Suðausturlandi og Austfjörðum.
Fyrstu viðvaranir taka gildi á hádegi á morgun og gilda til miðnættis annað kvöld. Þær eru ýmist gular eða appelsínugular og taka gildi á mismunandi tímum en gilda allar til miðnættis. Að því loknu tekur við önnur gul viðvörun um land allt sem gildir fyrir allan sunnudaginn. Appelsínugular viðvaranir taka gildi í Breiðafirði á morgun klukkan 13, á Suðausturlandi klukkan 17 og á Miðhálendi klukkan 13. Á morgun má búast við suðaustanstormi eða jafnvel roki, auk hláku um allt land. Seinni partinn eykst vindhraðinn í 18 til 25 metra á sekúndu með talsverðri rigningu. Hvassast verður norðvestantil, en úrhellisrigning á Suðausturlandi. Austantil verður veðrið rólegra og þurrt fram til kvölds. Hiti verður á bilinu fimm til tíu stig annað kvöld. Nánar um veður hér. Vara við vatnavöxtum Vegna mikillar úrkomu og hlýinda er varað við vatnavöxtum á stærstum hluta landsins. Sérstaklega er búist við mikilli úrkomuákefð í kringum Mýrdalsjökul og á Suðausturlandi. Í því vetrarástandi sem ríkt hefur að undanförnu með frosnum jarðvegi og litlu írennsli í jarðveg gæti óvenju stór hluti úrkomunnar skilað sér sem aukið rennsli og hækkun vatnshæðar í ám og lækjum. Óli Þór Árnason veðurfræðingur á Veðurstofunni segir allt líta út fyrir að spár muni standast á morgun. „Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt.“ Hann segir að veðrið verði strax í fyrramálið erfitt. Þá verði komin suðaustanátt vestantil á landinu og eftir það bæti jafnt og þétt í. Það verði líklega einhver úrkoma, minni háttar snjókoma á Vestfjörðum um hádegisbil og svo fljótlega eftir hádegi komi skilin af fullum krafti og þá fari að rigna. „Það er að frysta núna en þarna verður allt þetta kalda loft farið af landinu og hlýja loftið á þá greiðan aðgang að. Ef þetta fer ekki strax í rigningu verður þetta mjög skammvinn slydda og snjókoma sem breytist svo í rigningu. Um fimmleytið verður orðið mjög hvasst og mjög blautt á Reykjanesi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og austur með Suðausturlandi.“ Eftir því sem líður á kvöldið versni svo veðrið á Suðausturlandinu og Snæfellsnesi. Hann segir rigninguna bundna við sunnan- og vestanvert landið, fyrir norðan verði hvasst og hlýtt. Hreinsa frá niðurföllum Hann segir áríðandi fyrir fólk að klæða sig eftir veðri og hvetur fólk til að hreinsa vel frá niðurföllum. Það sé mikið vatn í snjónum sem kom í dag og þegar hlýindin komi þá taki hann upp hratt og snjórinn líka sem var fyrir. „Það verður mikið álag á frárennsliskerfinu þannig það er eins gott að allt vatnið hafi greiðan aðgang.“ Hann á þó ekki von á því að það rigni svo mikið að götur verði auðar um alla borg að þessu loknu, snjórinn sé svo mikill. Það verði þess í stað víða mikil hálka, asahláka og blautt. Enn er nóg af snjó á götum víða.Vísir/Vilhelm „Það mun taka mikið upp en þar sem hann hefur náð að þjappast mun frekar myndast svell,“ segir Óli Þór. Það sé ekki búið að hreinsa snjóinn eins vel burt og síðast þegar gerði svona veður og því sé líklegt að vatnið muni renna á götunum núna og víða myndist vatnselgur. Hann á von á því að það verði illfært fyrir hjólreiðamenn á morgun en það verði hægt að fara um fótgangandi með réttan skóbúnað í hálku og bleytu. „Þetta er verulega öflug hláka.“ Hann segir að á laugardag gæti orðið nokkuð hvasst og mögulega verði einhverjar viðvaranir uppfærðar. Hann segir að veðrið verði rólegra á sunnudag og líklega fram á miðvikudag. Þá taki næsta lægð við, en hún sé líklega sú síðasta í bili. „En svo breytast spár. Þetta er lægðatíminn, það er engin spurning um það.“ Grjóthrun og skriðuhætta Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að snjór sé eins og stendur á öllu landinu. Á Suður- og Suðausturlandi og Austfjörðum geti skapast hætta á krapaflóðum þegar hlánar skarpt og rignir talsvert ofan í snjóinn um helgina. Að auki geti skapast grjóthruns- og skriðuhætta á þeim svæðum sem verða snjólaus í hlákunni. Veðurfræðingur telur hjólin best geymd heima á morgun.Vísir/Vilhelm Spáð er áframhaldandi umhleypingum um helgina með hvössum sunnanáttum, talsverðri rigningu, hlýindum og asahláku. Fólk er hvatt til að hreinsa frá niðurföllum og fráveituskurðum til að fyrirbyggja vatnstjón. Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir björgunarsveitir á sunnanverðu landinu hafa haft í nægu að snúast í dag vegna erfiðrar færðar víða. Hann segir björgunarsveitir um allt land í viðbragðsstöðu að vanda vegna veðursins um helgina. Víða þungfært Á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, er fólk hvatt til að fylgjast vel með tilkynningum. Víða er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Vegur um Fróðárheiði er ófær og Dynjandisheiði sömuleiðis. Þá er víða þungfært á Austur- og Suðausturlandi. Fjallað var um það fyrr í dag að gera megi ráð fyrir því að veðrið hafi áhrif á flugáætlun. Flug til Evrópu í fyrramálið er á áætlun en raskanir eru á flugi til Íslands frá Evrópu eftir hádegið á morgun og einnig flugi sem er á áætlun til Norður-Ameríku og Evrópu síðdegis. Á vef Isavia má sjá að fjölda fluga frá Play og Icelandair hefur verið aflýst á morgun og á laugardag.
Færð á vegum Veður Mest lesið „Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt“ Veður Sjáðu herbergið sem Samfó vill en Sjallar neita að yfirgefa Innlent Kenndi Biden, flugmönnum, flugumferðarstjórum og „DEI“ um slysið Erlent Tilraun til stunguárásar í Hafnarfirði Innlent Sprautan sprakk og konan heppin að halda auganu Innlent Héraðsdómur vísar Kiðjabergsmáli frá dómi Innlent Segir nýja forgangsröðun jarðganga uppi á borðinu Innlent Hellisheiði lokað vegna fastra bíla Innlent Lýsa yfir hættustigi vegna yfirvofandi eldgoss Innlent „Skutlari“ áreitti stúlku og varð fyrir alvarlegri líkamsárás Innlent Fleiri fréttir „Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt“ Appelsínugular viðvaranir bætast við þær gulu Gengur í storm með slyddu eða snjókomu „Hvert kemst vatnið? Allt þetta vatn sem er á leiðinni?“ Gefa út gula viðvörun fyrir landið allt Fallegt vetrarveður en vetrarkyrrðin úti á morgun Snjómokstur hófst um klukkan fjögur í nótt Víða mikil snjókoma og órólegar umhleypingar í kortunum Snjómagnið verulegt en ekki óeðlilegt miðað við árstíma Snjókoma í flestum landshlutum Útlit fyrir rólegt helgarveður Snjóar sunnan- og vestanlands í kvöld Gular viðvaranir vegna snjókomu á sunnanverðu landinu Hvasst og víða rigning eða slydda sunnantil Hvassviðri við suður- og vesturströndina Veður gengið niður en fer kólnandi Áfram norðaustanhríð og appelsínugular viðvaranir Hvessir sunnan- og austantil í kvöld Kólnar í veðri Vindur nær stormstyrk á norðvestanverðu landinu Gular viðvaranir fyrir norðan og vestan Auknar líkur á skriðum á Vestfjörðum, Vestur- og Suðurlandi Bætir í úrkomu og hiti nær tíu stigum Suðlægur vindur og væta sunnan- og vestantil Veðurviðvaranir um allt land vegna hvassviðris og hláku Úrkomusvæði vaxandi lægðar nálgast óðum Víða skúrir og hlýnandi veður Bjart, kalt og hægur vindur Yfirleitt þurrt og bjart veður sunnan- og vestantil Má reikna með snjókomu eða éljum síðdegis Sjá meira