Rekinn fyrir að vera í sambandi með leikmanni en vill annað tækifæri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. mars 2025 09:01 Willie Kirk hefur verið atvinnulaus síðasta árið, eða síðan hann var rekinn frá Leicester City. getty/Leicester City Willie Kirk, sem var rekinn frá Leicester City eftir að hafa viðurkennt að eiga í ástarsambandi með leikmanni, vill fá annað tækifæri.
Kirk var látinn fara frá Leicester fyrir ári og hefur ekki starfað við þjálfun síðan þá. Í viðtali við BBC segist hann hafa sótt um öll störf sem í boði hafa verið í efstu tveimur deildum kvennaboltans en ekki verið boðaður í eitt viðtal. Kirk segist vera meðvitaður um að hann hafi gert mistök hjá Leicester en honum líði eins og hann sé nánast brennimerktur. „Í stóra samhenginu framdi ég ekki alvarlegan glæp. Ég fékk engan fangelsisdóm en mér líður þannig,“ sagði Kirk. Hann hefur starfað lengi í kvennaboltanum og vill ólmur komast í annað starf. „Ég hef gert nóg í bransanum til að verðskulda annað tækifæri en ég ákveð það ekki. Ég þarf að halda áfram að gera það sem ég er að gera. Halda áfram að sækja um störf og vinna í sjálfum mér. Þetta er pirrandi en líka skiljanlegt,“ sagði Kirk sem náði góðum árangri með Leicester og kom liðinu meðal annars í bikarúrslit. Kirk var upphaflega settur til hliðar hjá Leicester 8. mars 2024 eftir að kvörtun barst vegna sambands hans við leikmann liðsins. Eftir innanhúss rannsókn hjá Leicester var Kirk svo rekinn 28. mars. Sambönd leikmanna og þjálfara eru ekki ólögleg en hvert félag í ensku kvennadeildinni er með sérstakar reglur um slíkt. Hinn 46 ára Kirk og leikmaðurinn eru enn í sambandi.
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira