Í sérsaumuðum kjól úr ónothæfum peysum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 22. apríl 2025 13:01 Una Torfa kom fram á hátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði um helgina og rokkaði sérsaumaðan kjól. Aníta Björk Tónlistarkonan Una Torfadóttir naut sín í botn á sviðinu á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði um helgina. Klæðaburður hennar greip auga blaðamanns sem fékk að heyra nánar frá þessum sérsaumaða kjól sem vinur hennar hannaði sérstaklega fyrir Unu.
Hlýr kjóll fullkominn fyrir útihátíðir Unu Torfa þarf vart að kynna fyrir lesendum en hún hefur vakið mikla athygli í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár og á þekkta smelli á borð við lagið Fyrrverandi. Þá gerði hún sér lítið fyrir og setti upp söngleikinn Storm í Þjóðleikhúsinu með Unni Ösp sem er innblásin af lögum Unu. Það sem færri vita kannski er að Una fór í klæðskeranám í Tækniskólanum. „Kjóllinn er hannaður og saumaður af Daníel Kristni Péturssyni, góðum vini mínum, sem ég kynntist í klæðskeranáminu. Danni var að vinna hjá 66 norður og tók eftir peysum sem mátti ekki selja vegna framleiðslugalla. Hann fékk þessa frábæru hugmynd, að endurnýta peysurnar og búa til hlýjan kjól sem er fullkominn fyrir útihátíðir. Kjóllin kom fyrst með mér á Þjóðhátíð 2024 og svo aftur upp á svið núna á Aldrei,“ segir Una brosandi. Skiptir mestu máli að geta verið hún sjálf á sviði Þrátt fyrir að hafa gaman að tísku segist hún ekki oft klæða sig sérstaklega upp fyrir framkomu á sviði. „Oft er ég bara í mínum venjulegu sparifötum og stundum í einhverju hversdagslegu. Ég held samt að klæðaburður hafi alltaf eitthvað að segja, hvort sem hann er útpældur og ýktur eða ekki. Það skiptir mig máli að líða eins og ég sé ég sjálf á sviði, að ég sé jarðtengd og geti verið heiðarleg. Það hentar tónlistinni minni líka vel held ég.“ Peysukjóllinn er hlýr og einstakur.Aníta Björk Þó sé gaman að ögra sér örlítið. „Það er mjög skemmtilegt að nýta stóra framkomu sem þessa sem tækifæri til að stækka heiminn minn svolítið. Ég á nokkrar flíkur sem ég keypti sérstaklega með sviðið í huga, gólfsíðir kjólar, glitrandi blússur og háir hælar til dæmis. Peysukjóllinn var svo fyrsta sérsaumaða flíkin sem ég hef klæðst á sviði og ég er svo þakklát fyrir hann Danna og alla vinnuna sem hann setti í að búa kjólinn til.“ Fiðrildin óumflýjanleg Una nýtur sín vel á sviðinu og hefur gaman að því að eyða páskunum á Vestfjörðum. „Stemningin á Aldrei er alltaf frábær. Ég var að koma í fjórða skiptið og naut mín alveg í botn. Það er svo fallega staðið að öllu skipulagi og utanumhaldi, svo er svo fallegt á Ísafirði og andinn góður, þá getur þetta ekki klikkað.“ Fjöldi fólks var í salnum og sömuleiðis voru tónleikarnir í beinni útsendingu.Aníta Björk Aðspurð hvort hún hafi verið stressuð fyrir þessu stóra giggi segir Una: „Ég var eiginlega bara spennt að koma fram, ég var búin að fylgjast með Salóme Katrínu mágkonu minni og mjög góðri vinkonu sem spilaði á undan mér og salurinn var svo glaður og fallegur að ég vissi að við myndum skemmta okkur saman. En auðvitað fæ ég alltaf smá fiðrildi í magann.“ Ómetanleg stemning Samveran með góðu fólki segir Una svo að standi upp úr frá helginni. „Við þurfum ekk'að vera í bandi,“ gæti Una verið að syngja þarna.Aníta Björk „Það er svo gaman að fá að vera á Ísafirði í nokkra daga umkringdur gömlum vinum og nýjum. Við fáum að njóta alls konar stunda saman, listamenn og vinir baksviðs að hlæja, yndislega fjölskyldan sem rekur Tjöruhúsið og tekur á móti manni með opnum faðmi, börn og fullorðnir að dansa í Skemmunni við tónlist sem þau elska eða eru að heyra í fyrsta sinn, þessi augnablik og ótal fleiri eru öll Aldrei fór ég suður. Fólkið sem stendur að hátíðinni og gefur okkur hinum þessar stundir að gjöf á risastórt hrós skilið og þau eiga allt mitt þakklæti,“ segir Una og bætir við að hún hlakki til að mæta aftur að ári.
Tíska og hönnun Tónleikar á Íslandi Tónlist Aldrei fór ég suður Mest lesið Stjörnulífið: Frumsýnir kærastann á Tenerife Lífið Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum Lífið Í sérsaumuðum kjól úr ónothæfum peysum Tíska og hönnun Hafa aldrei rifist Lífið „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið Hjartaknúsarinn tileinkaði íslenskri fyrirsætu rómantískan slagara Lífið Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Lífið Viltu vinna skemmtilegar gjafir fyrir sumardaginn fyrsta? Lífið samstarf Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Lífið Stóri plokkdagurinn haldinn á sunnudaginn Lífið Fleiri fréttir Í sérsaumuðum kjól úr ónothæfum peysum Gærurnar verða að hátísku Húsfyllir þegar tískusýning tók yfir Ásmundarsal Sjáðu tískusýningu heitustu hönnuða framtíðarinnar Skúli Mogensen, Andri Snær og Sandra Barilli í stuði Troðfullt á opnun hjá ofurskvísum Héldu að hún væri rokkstjarna eða gift ríkum gaur Biður drottninguna að blessa heimilið Krotaði á átta milljón krónu tösku móður sinnar Orðin þrítug og nennir ekkert að pæla í áliti annarra Versace stígur til hliðar eftir áratugastarf Hátísku-Laufey á fremsta bekk í París „Bara gaman þegar fólk er í sjokki yfir okkur“ Enginn nakinn á Óskarnum Sjá meira
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið