Strekkingur og væta suðvestanlands en allt að 17 stig fyrir austan Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. maí 2025 07:55 Á Seyðisfirði er spáð ansi góðu veðri. Vonandi rætist sú spá fyrir Seyðfirðinga. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir sunnan og suðvestan stinningsgolu og dálitla vætu með köflum á sunnan- og vestanverðu landinu í dag. Hiti verður þar á bilinu fimm til tíu stig. Hins vegar verður bjartara austanlands og gæti hiti náð 17 stigum þegar best lætur.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings um veðurspána í dag. Á morgun bætir í úrkomu en það verður lengst af þurrt á Norðausturlandi. Síðan er gert ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga, hlýjar suðlægar áttir og víða rigning eða súld af og til, en yfirleitt þurrt norðaustanlands. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Suðlæg átt, 5-13 m/s, hvassast vestantil og rigning með köflum, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á þriðjudag: Sunnan 8-15 og dálítil rigning af og til, en bætir í úrkomu um kvöldið. Yfirleitt hægari og bjart með köflum eystra. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Sunnan og suðvestan 5-13 og rigning sunnan- og vestanlands, hiti 4 til 10 stig. Bjart með köflum norðaustantil og hiti 12 til 17 stig að deginum. Á fimmtudag og föstudag: Gengur í ákveðna suðvestlæga átt með skúrum eða slydduéljum um landið vestanvert, en þurrt að kalla fyrir austan. Kólnar í veðri. Á laugardag: Útlit fyrir vestlæga átt og víða dálitlar skúrir eða slydduél. Hiti 2 til 10 stig, mildast fyrir austan.
Veður Mest lesið Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Matthías leiðir Framsókn í Árborg Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Fleiri fréttir Stífri norðanátt beint til landsins og vegir lokaðir Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Færð geti víða spillst hratt Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Gular veðurviðvaranir í kortunum Köldu lofti beint til landsins Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Appelsínugul viðvörun á morgun Vara við stórhríð á Austurlandi Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Væta sunnantil og töluverð hláka í höfuðborginni Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna snjókomu Snjókoma á höfuðborgarsvæði í dag og á morgun Úrkomusvæði með snjókomu fer yfir vesturhelming landsins Gular veðurviðvaranir á Austurlandi Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Hvöss austanátt fylgir alldjúpri lægð í dag Gul veðurviðvörun á Suðausturlandi Hitinn að skríða yfir frostmark sunnan heiða Herðir á frosti í kvöld Él og snjókoma norðan- og austantil Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Sjá meira