Lífið

Svona verður dag­skráin á 17. júní í Reykja­vík

Agnar Már Másson skrifar
Skátar í skrúðgöngu.
Skátar í skrúðgöngu. vísir/daníel

Fjölbreytt dagskrá verður í boði í Reykjavík á 17. júní á þriðjudaginn. Skrúðganga verður frá Hallgrímskirkju en auk þess eru á dagskrá tónleikar, götuleikhús, dansveisla, sirkus, leiktæki, matarvagnar og fornbílasýningar í Hljómskálagarði og á Klambratúni svo fátt eitt sé nefnt.

Í tilkynningu frá borginni segir að hátíðarathöfn á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hefjist á Austurvelli kl. 11:10 en henni verður sjónvarpað og útvarpað á RÚV.

Athöfnin verður söguleg að nokkru leyti þar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðið Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að flytja hátíðarávarpið sem allt fram til þessa hefur verið í höndum forsætisráðherra.

Forsætisráðherra leggur svo blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og fjallkonan flytur ávarp en venju samkvæmt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til hún gengur út á völlinn. 

Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli í Hólavallakirkjugarð þar sem Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum að leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur konu hans.

VÆB troða upp í Hljómskálagarðinum 

Skátar leiða skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju klukkan 13.00. Í skrúðgöngunni slást leynigestir með í hópinn þeirra á meðal eru allir landvættir Íslands. Lúðrasveitin Svanur leikur undir sér um að slá taktinn.

Öllum er velkomið að taka þátt.

Í Hljómskálagarðinum verður fjölbreytt dagskrá fyrir öll og ætti engum að leiðast, dans, sirkus og hoppukastalar. Listhópar Hins Hússins verða með ýmsar uppákomur á víð og dreif um garðinn. Hljómskálagarðurinn verður stútfullur af allskyns skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Ókeypis aðgangur er á alla dagskrárliði og í tæki.

Dagskrá á sviði: 

Systurnar Dóra Júlía og Helga Margrét eru skemmtanastjórar á stóra sviðinu.

  • 13:50 Leikhópurinn Lotta
  • 14:30 Dansskóli Birnu Björns
  • 14:40 Lína Langsokkur
  • 15:00 Gugusar
  • 15:20 Dans World Class
  • 15:30 Inspector Spacetime
  • 16:10 Dans Brynju Péturs
  • 16:30 Emmsjé Gauti
  • 17:00 VÆB
  • 13:00-17:00 Krúserklúbburinn verður með glæsilega bílasýningu á Skothúsvegi
  • 14:00-17:00 Reykjavik HEMA Club munu setja upp tvo velli til að skylmast á og leika listir sínar
  • 14:30 Dans Afríka Iceland verður með trommuslátt og dans í garðinum.

Víðsvegar um garðinn veða hoppukastalar, skátaþrautabraut, klifurveggu og matarvagnar. Auk þess verður Hringleikur með sirkusatriði á vel völdum stöðum. Dans Afrika Ísland dansar fyrir gesti. 

Listhópar Hins Hússins verða með blöndu af menningarviðburðum í garðinum. Götuleikhús Hins Hússins sýnir listir sínar í Hljómskálagarði.

Matarvagnar á Klambratúni

Við fögnum þjóðhátíðardegi Íslendinga á Klambratúni með léttri og skemmtilegri stemningu fyrir alla fjölskylduna sem hefst kl. 13:00. 

Dagskrá:

  • 13:00 Matarvagnar og leiktæki
  • 13:00 Dj Fusion Groove
  • 14:00 Lúðrasveit Verkalýðsins
  • 14:45 Dans Brynju Péturs
  • 16:00 Dans JSB
  • 15:00 Þorri og Þura fyrir yngstu börnin 

Harmonikufélag Reykjavíkur mun halda harmonikutónleika og harmonikuball í Ráðhúsinu. Ókeypis verður inn og nóg af sætum fyrir áheyrendur og gólfplássi fyrir dansara. Dagskráin hefst klukkan 15:00 lýkur klukkan 16:00. Þetta verður fjör.

Ókeypis fyrir öryrkja og fólk í þjóðbúning

Þjóðhátíðardeginum 17. júní verður fagnað á Árbæjarsafni með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá þar sem þjóðbúningar, þjóðdansar, fjallkonan, fornbílar, harmonikkuleikur, veitingasala og gömlu góðu sleikjóarnir koma við sögu. Ókeypis aðgangur er fyrir þá sem mæta í þjóðbúningi, öryrkja, börn og menningarkortshafa.

Að vanda eru þjóðbúningurinn og þjóðdansar í öndvegi á þessum hátíðardegi og eru gestir hvattir til að mæta í eigin þjóðbúningi.

Fjallkonu Árbæjarsafns verður skautað í safnhúsinu Lækjargötu kl. 14 en eftir það hefst kennsla í þjóðdönsum undir leiðsögn Atla Freys Hjaltasonar í Þjóðdansafélaginu.

Nokkrir félagar úr Fornbílaklúbbnum mæta með drossíur sínar sem verða til sýnis á víð og dreif um safnsvæðið.

Af nógu er að taka og hægt er að skoða dagskrána og kort yfir götulokanir vegna hátíðahaldanna á www.17juni.is

Gestir eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í hátíðahöldunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.