Veður

Skúrir á víð og dreif

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður allt að 15 til 17 stig í dag.
Hiti á landinu verður allt að 15 til 17 stig í dag. Vísir/Vilhelm

Úrkomusvæði gekk yfir landið og því rigndi nokkuð víða í gærkvöldi og í nótt. Vindur verður með hægasta á móti.

Á vef Veðurstofunnar segir að í dag sé útlit fyrir að vindur verði með hægasta móti.

„Búast má við skúrum á víð og dreif, einkum síðdegis, en eitthvað ætti að sjást til sólar milli skúranna. Hiti allt að 15-17 stig, hlýjast þar sem sólin nær að skína og er ekki afgerandi munur milli landshluta í dag hvað hlýindi varðar.

Á morgun (föstudag) er hæg breytileg átt eða hafgola í kortunum. Líklega bjartara veður en í dag, en síðdegis geta skúrir látið á sér kræla á stöku stað, einkum inn til landsins. Væntanlega mun minna af skúrum á sveimi á morgun heldur en í dag. Hitinn á morgun mjakast uppávið um eina til tvær gráður frá deginum í dag,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Hæg breytileg átt eða hafgola. Bjart með köflum, en sums staðar skúrir síðdegis. Hiti yfirleitt 10 til 18 stig, hlýjast inn til landsins.

Á laugardag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir á víð og dreif. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag: Norðvestlæg eða breytileg átt 3-10 og víða bjart veður, en stöku skúrir á Norður- og Austurlandi síðdegis. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á mánudag: Gengur í sunnan 5-13 og þykknar upp á Suður- og Vesturlandi með súld eða rigningu síðdegis. Hægari vindur og bjartviðri fyrir norðan og austan. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu.

Á þriðjudag: Sunnanátt með rigningu og súld, en úrkomulítið norðaustantil landinu. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt og víða vætusamt, en þurrt að kalla austanlands. Kólnar heldur í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×