„Rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2025 11:33 Axel Óskar Andrésson varð í gær fyrsti leikmaður Aftureldingar í efstu deild til að fá rautt spjald. Sýn Sport Axel Óskar Andrésson skildi sína menn í Aftureldingu eftir í slæmum málum í Garðabænum í gær þegar hann fékk tvö gul spjöld með aðeins sex mínútna millibili í fyrri hálfleiknum.
Afturelding var 1-0 yfir þegar Axel Óskar fékk rauða spjaldið en Mosfellingar þurftu því að leika í rúman klukkutíma manni færri og Stjarnan vann á endanum 4-1 sigur. Axel Óskar varð þarna fyrsti leikmaður Aftureldingar í efstu deild til að fá rautt spjald. Sérfræðingar Stúkunnar ræddu brotið og rauða spjaldið. Klippa: Stúkan: Umræða um rauða spjaldið á Axel „Það er oft talað um að mörk breyti leikjum en það má segja að rautt spjald hafi breytt þessum leik,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, umsjónarmaður Stúkunnar, og bað sérfræðinga sína um þeirra skoðun á rauða spjaldinu. Ekki í fyrsta skiptið „Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann gerir svona, Mér finnst þetta svolítið kjánalegt að henda sér niður á gulu spjaldi því þetta er svona gul-rautt spjald,“ sagði Arnar Grétarsson, sérfræðingur Stúkunnar. „Það er búið að koma nokkrum sinnum fyrir að hann hafi sloppið en þetta rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum,“ sagði Arnar. „Það var á móti ÍA þar sem hann fór í svipaða tæklingu en slapp ,“ sagði Kjartan. Hann yfirgírast „Axel er agressífur leikmaður, hann vill fara í návígi og vill fara upp í framherjana. Hann lifir svolítið á því. Þarna hleypur honum bara kapp í kinn og hann yfirgírast,“ sagði Ólafur H. Kristjánsson, sérfræðingur Stúkunnar. „Hvað ætlar hann að gera með boltann liggjandi á jörðinni? Hann er kannski að reyna að blokkera einhverja sendingu út á kant en farðu upp í hann og bakkaðu svo af honum. Þetta atvik hafði stór áhrif á leikinn,“ sagði Ólafur. Það má finna umræðuna um rauða spjaldið hér fyrir ofan.
Besta deild karla Stúkan Afturelding Stjarnan Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira