„Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Andri Már Eggertsson skrifar 22. ágúst 2025 22:00 Pedersen fagnar markinu. vísir / ernir Vestri vann 0-1 sigur gegn Val í úrslitum Mjólkurbikarsins. Þetta var fyrsti bikarmeistaratitill í sögu félagsins. Jeppe Pedersen skoraði eina mark leiksins og sagði að þetta hafi verið hans flottasta mark á ferlinum. „
Þetta var ótrúlegt. Mér er alveg sama hver skoraði markið en þetta var ótrúlegt og við erum allir mjög ánægðir með þetta,“ sagði Jeppe Pedersen í viðtali við Vísi eftir leik. Jeppe Pedersen skoraði eina mark leiksins sem var af dýrari gerðinni þar sem hann negldi boltanum úr kyrrstöðu langt fyrir utan teig. „Þetta var flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum.“ Valsmenn fengu þónokkur færi til að jafna undir lok fyrri hálfleiks en Jeppe var ánægður með hvernig liðið barðist fyrir öllum boltum og náði að lifa af. „Valur er gott lið og þeir fengu færi undir lok fyrri hálfleiks en í seinni hálfleik fannst mér við komast yfir þann hjalla og vörðumst vel sem lið.“ Patrick Pedersen, leikmaður Vals, sleit hásin í síðari hálfleik. Aðspurður út í hvernig það hafi verið fyrir Jeppe að horfa upp á bróður sinn vera borinn af velli sagði Jeppe að það hafi verið afar sorglegt. „Það var ömurlegt og ég sendi honum hlýja strauma. Þetta var mjög leiðinlegt.“ Varnarleikur Vestra var frábær í síðari hálfleik og að mati Jeppe er mikil reynsla í hans liði að verja forskot og hann var ánægður með hvernig liðið varðist sem lið. „Við höfum oft verið í þessari stöðu á þessu tímabili. Við vitum hvað við eigum að gera og kunnum þetta. Auðvitað hefðum við viljað halda betur í boltann en stundum stjórnar þú ekki leiknum.“ Stuðningsmenn Vestra fóru á kostum í stúkunni og Jeppe var hissa á því hversu margir mættu til að styðja Vestra í kvöld. „Ég er pínu hissa á því hversu marga stuðningsmenn við eigum. Þeir voru stórkostlegir og hjálpuðu okkur mikið,“ sagði Jeppe Pedersen og bætti við að þeir séu ekki hættir og ætla að enda í efri hluta deildarinnar.
Vestri Mjólkurbikar karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira