Kjarasamningur í höfn og atkvæðagreiðslu um verkfall aflýst Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 19. september 2025 13:51 Frá undirritun kjarasamnings milli Alcoa, AFL og RSÍ. Samningar hafa náðst í kjaradeilu Rafiðnaðarsambands Íslands og AFLs við Alcoa og hefur fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu um verkfall því verið aflýst.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélögunum tveimur. „Alcoa og stéttarfélögin AFL og RSÍ hafa undirritað nýjan kjarasamning sem gildir afturvirkt frá mars 2025 og til fjögurra ára. Atkvæðagreiðslu um verkfall hefur því verið aflýst. Samningurinn er sambærilegur við aðra kjarasamninga sem gerðir hafa verið í stóriðju að undanförnu en á næstu dögum munu stéttarfélögin kynna samninginn fyrir starfsfólki Alcoa á sérstökum kynningarfundum,“ segir í yfirlýsingunni. Í tilkynningu frá stéttarfélögum er ríkissáttasemjara þakkað fyrir sína vinnu og því fagnað að sameiginleg lausn sé í höfn. Fyrir rúmri viku síðan komu fulltrúar Alcoa á Reyðarfirði og starfsgreinafélaga saman á formlegum fundi með ríkissáttasemjara í fyrsta sinn síðan í sumar. Kjaraviðræðunar höfðu þá staðið yfir í níu mánuði og lítið gengið en Vísir greindi frá því fyrr í september að stilla hafi þurft til friðar á milli samningsaðila. Starfsmenn Alcoa á Reyðarfirði höfðu þá verið samningslausir síðan í febrúar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Kjaramál Fjarðabyggð Áliðnaður Stóriðja Vinnumarkaður Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Sjá meira