„Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Smári Jökull Jónsson skrifar 26. september 2025 19:27 Robert Chantrey býr á Gamla garði og stundar nám við Háskóla Íslands. Íbúar á Gamla garði hafa mátt búa við ítrekuð innbrot á stúdentagarðana undanfarið. Vísir/Ívar Fannar Íbúi á stúdentagörðum háskólans segist vilja finna fyrir öryggi en ekki ógn eftir ítrekuð innbrot undanfarið. Óboðnir gestir gerðu sig meðal annars heimakomna í kjallara hússins þar sem þeir gerðu þarfir sínar á gólfið.
Íbúar í Gamla garði hafa undanfarið verið fórnarlömb óboðinna gesta sem ítrekað hafa brotist inn, stolið frá þeim sem þar búa, og jafnvel gert sig heimakomna. Íbúar settu upp skilti þar sem taldir eru dagar sem liðnir eru frá síðasta innbroti en í morgun þurfti að byrja að telja upp á nýtt. Í gær voru liðnir átta dagar án atvika en í dag er búið að skipta áttunni út fyrir núll.Aðsend Ástandið á stúdentagörðunum hefur varað síðan í vor og valdið þeim sem þar búa miklu ónæði. Sameiginleg eldhús eru í húsinu þar sem íbúar deila aðstöðu og geyma sinn mat og drykkjarföng sem ítrekað hefur verið stolið. Eftir að hafa grunað hvert annað í upphafi fóru íbúar að taka eftir fólki koma inn í húsið seint á kvöldin sem ekki bjó þar sjálft. „Þeir skilja það sem þeir hafa notað eftir úti um allt og láta okkur um að taka til. Fita á brauðristinni diskar á borðunum, bjórdósir á borðunum hérna, smjör á ofninum. Það er matur dreifður um allt eldhúsið.“ „Þetta er frekar niðurdrepandi“ Eftir átta daga daga án innbrots var brotist inn á ný síðastliðna nótt. Íbúar eru uggandi yfir stöðu mála. „Þetta er ekki gott ef satt skal segja. Fólk táraðist í morgun þegar við sáum að það hafði gerst aftur. Þetta er niðurdrepandi því við vitum hvað þetta er góður staður þegar allt gengur sinn vanagang og það er ekki brotist inn.“ Fyrir utan stuld á mat og drykkjarvörum þá voru ummerki hér kjallara hússins um að dvalið hefði verið í rýminu. Meðal annars var búið að leggja út dýnur og þá hafði viðkomandi gert þarfir sínar á gólfið. Hafa átt í samskiptum við innbrotsþjófana Íbúar hafa rekist á mennina og átt þá í samskiptum við þá. Oftast er um að ræða sömu tvo mennina sem hafa komið sér inn í húsið og gert sig heimakomna á sameiginlegu svæði og jafnvel sofnað á sófa. „Þeir hafa ekki ógnað líkamlega heldur á með hótunum og orðum á sama tíma og lögregla leiðir þá burt í járnum. Segja niðurlægjandi hluti og það er ekkert sérlega skemmtilegt að hlusta á það þegar þú veist hvað þeir hafa gert.“ Félagsstofnun stúdenta sem er rekstraraðili stúdentagarðanna tjáði fréttastofu í dag að öryggisgæsla yrði hert við húsið og þá væri búið að óska eftir samráðsfundi við lögreglu vegna inbrotanna. Robert segir íbúa þakkláta fyrir það sem hefur verið gert til að bæta öryggi en vill að vandamálið verði leyst til frambúðar. „Við viljum bara fá aftur þá daga þegar það var óhætt að gera hlutina, frekar en að eiga á hættu að koma inn í eldhúsið þar sem eru hnífar í skúffunum og þetta er drukkið fólk, svo þetta er hættulegt. Við viljum bara vera örugg.“
Háskólar Reykjavík Hagsmunir stúdenta Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira