Gætu kvatt Bestu deildina án þjálfarans og lykilmanna Sindri Sverrisson skrifar 7. október 2025 19:13 Magnús Már Einarsson fékk rautt spjald gegn KR fyrir viðbrögð sín við mistökum dómarans í aðdraganda þess að KR komst í 2-1. vísir/Diego Afturelding spilar leik upp á líf og dauða að Varmá sunnudaginn 19. október, við Vestra í næstsíðustu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Þjálfarinn og tveir lykilmenn Aftureldingar verða þá í banni.
Sjö leikmenn og einn þjálfari voru í dag úrskurðaðir í eins leiks bann í Bestu deildinni. Bannið taka þeir út í næstsíðustu umferðinni, dagana 18.-20. október að loknu landsleikjahléi. Leik Aftureldingar og Vestra hefur verið flýtt um klukkutíma og hefst hann klukkan 13. Þar verða heimamenn án þjálfarans Magnúsar Más Einarssonar, sem fékk rautt spjald í jafnteflinu við KR á laugardaginn, en einnig án tveggja öflugra leikmanna, þeirra Axels Óskars Andréssonar og Arons Jóhannssonar. Báðir hafa nú safnað sjö gulum spjöldum á leiktíðinni. Ef Afturelding tapar leiknum við Vestra fellur liðið niður í Lengjudeildina, sama hvað gerist í lokaumferðinni. Óli Valur Ómarsson missir af afar mikilvægum leik Breiðabliks við erkifjendurna og nýkrýnda Íslandsmeistara Víkings, þar sem Blikar freista þess að halda í vonina um Evrópusæti. Víkingar verða í þeim leik án Daníels Hafsteinssonar og Matthíasar Vilhjálmssonar sem líkt og Óli Valur hafa nú safnað fjórum áminningum. KR-ingurinn Aron Þórður Albertsson er kominn með tíu áminningar í sumar og verður í banni gegn ÍBV, í leik sem gæti fellt KR ef liðið landar ekki sigri. Markus Nakkim missir svo af leik Vals við FH, vegna fjögurra áminninga.
Besta deild karla Afturelding Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira