Gular veðurviðvaranir víða um land Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. október 2025 10:23 Einungis íbúar á Norðurlandi eystra sleppa við veðurviðvararnirnar. Veðurstofa Íslands Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir víða um land. Þær taka gildi á föstudag og verða fram á laugardagsmorgun.
Fyrsta viðvörunin verður á Suðausturlandi og tekur gildi klukkan sex í fyrramálið. Þar er spáð talsverðri rigningu og ört hækkandi hitastigi. Asahláka og mikil hálka getur myndast þegar rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Klukkan sjö fara veðurviðvaranir í gildi á Austfjörðum, þar sem búist er við álíka veðurskilyrðum, og á miðhálendinu þar sem tekur að hvessa. Klukkan níu fer gul veðurviðvörun í gildi á Suðurlandi og búast má við hvassviðri þar á slóðum. Varasamt verður að ferðast um á ökutæki sem tekur á sig mikinn vind og við fjöll má búast við snörpum vindhviðum upp á þrjátíu metra á sekúndu. Einnig tekur að hvessa á Norðurlandi vestra, Breiðafirði og í Faxaflóa þegar líður að hádegi. Klukkan eitt tekur einnig viðvörun gildi á Vestfjörðum. Þegar líður á daginn falla veðurviðvaranir á austurhluta landsins úr gildi. Á vestanverðu landinu falla síðustu viðvaranirnar úr gildi á laugardagsmorgun.
Veður Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Sjá meira