Þau hlutu Hönnunarverðlaun Íslands Atli Ísleifsson skrifar 7. nóvember 2025 07:46 Fjallahjólið Elja, framleitt af Lauf Cycles hlaut verðlaun sem Vara ársins. Sunna Ben Hönnunarverðlaun Íslands 2025 voru afhent við hátíðlega athufn í Grósku i gærkvöldi.
Fjallahjólið Elja er Vara ársins, Elliðaárstöð er Staður ársins og Fischersund Verk ársins. Þá hlaut Albína Thordarson arkitekt Heiðursverðlaun og Náttúruverndarstofnun viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun. Í tilkynningu frá Hönnunarmiðstöð segir að Elja, sem hlaut verðlaun sem vara ársins, sé fjallahjól hannað og framleitt af Lauf Cycles. „Elja er fulldempað fjallahjól sem sameinar með einstökum hætti eiginleika fjalla-, keppnis- og borgarhjóls. Í hjólinu sameinast yfirburðahönnun, tæknileg úrvinnsla, notendavæn hugsun og ábyrg framleiðsla.Tæknin gerir upplifun hjólreiðamanna við utanvega hjólreiðar einstaka og eykur möguleika til vistvænna samgangna allan ársins hring. Hjólið hefur sérstöðu á alþjóðamarkaði hvað búnað og tækni snertir en á sama tíma er hvergi gefið eftir í hönnun útlits og ytra byrði. Elliðastöð hlaut verðlaun sem Staður ársins. Sunna Ben Elliðaárstöð - Staður ársins 2025 Elliðaárstöð er nýr áfangastaður í Elliðaárdal, hönnuð af Tertu þverfaglegu hönnunarteymi í samstarfi við Landslag. Einstaklega vel hefur tekist að virkja svæðið og glæða það lífi en um leið fræða gesti og halda í menningarsöguleg verðmæti. Þar sem áður var iðnaðarsvæði er nú heimili fjölbreyttrar dagskrár á sviði menningar, menntunar, nýsköpunar, lista og íþrótta. Ekki síður er svæðið hannað fyrir frjálsan leik, samveru og næði. Tekist hefur að skapa nærandi stað sem fyllir gesti gleði og orku. Fulltrúar Fischersunds sem hlutu verðlaun fyrir verk ársins. Sunna Ben Fischersund - Verk ársins 2025 Fischersund talar til allra skilningarvita í gegnum ilm, tónlist og myndlist. Frá stofnun Fischersunds hefur skynheimurinn stækkað og styrkst um leið og verkum og vörum hefur fjölgað. Fischersund er heildstætt og lifandi verk sem sameinar ólíka miðla til að skapa ásýnd og vörur. Með þessari nálgun hafa þau skapað farveg fyrir hönnun og list sem samofin ferli, þar sem skynjunin sjálf er efniviðurinn og upplifunin endanlega afurð. Albína Thordarson arkitekt hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2025.Sunna Ben Albína Thordarson arkitekt - Heiðursverðlaunahafi 2025 Albína Thordarson arkitekt hlýtur heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2025 fyrir framlag sitt til byggingarlistar en hún hefur tryggt sér sess sem einn fremsti arkitekt Íslendinga. Verk Albínu einkennast af fagurfræði þar sem fólk og umhverfi er útgangspunktur í því að skapa tímalaus rými og byggingar. Rótgróin tengsl við byggingarlistina ásamt fagmennsku, framsýni og elju hafa gert Albínu að fyrirmynd og áhrifakonu í íslenskri arkitektasögu, en Albína var ein af fyrstu konunum á Íslandi til að starfrækja eigin arkitektastofu. Hún er mikilvægur brautryðjandi kvenna í faginu og höfundur fjölda verka sem enn móta umhverfi okkar og samfélag og hefur með störfum sínum rutt brautina fyrir nýjar kynslóðir arkitekta. Ævistarf Albínu Thordarson er merkilegur vitnisburður um gildi arkitektúrs sem þjónar fólki, samfélagi og menningu til framtíðar. Fulltrúar Náttúruverndarstofnunar. Sunna Ben Náttúruverndarstofnun verðlaunuð fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2025 Náttúruverndarstofnun hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025 fyrir framúrskarandi nálgun við uppbyggingu gestastofa með hönnun og arkitektúr að leiðarljósi.“ Rætt var við Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóra Lauf Cycles, í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöldi. Benedikt var þá nýkominn af sviði þar sem hann tók við verðlaunum fyrir vöru ársins. Hann átti ekki von á því að hljóta verðlaunin eins og sjá má í spilaranum að neðan.
Hönnunarverðlaun Íslands Tíska og hönnun Arkitektúr Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Verður að geta hent sér í hnébeygju Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Staðráðnar í að koma sterkari til baka Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Sjá meira