Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stefán Árni Pálsson skrifar 4. desember 2025 16:02 Adam hefur skoðað sveppina fram og til baka. Þeir virka vel að hans sögn. Adam Karl Helgason er þekktur af ýmsum sem einn helsti matgæðingur landsins enda hefur hann verið að gera það gott undanfarið á TikTok með metnaðarfullum og grípandi myndskeiðum.
Hann hefur getið sér gott orð fyrir gæðaefni og heiðarlega gagnrýni jafnt á fínustu veitingastöðum sem og skyndibitastöðum og jafnvel pylsustöndum. @adamhelgason Mac’n’cheese 🧀 Allt sem er notað í þessa uppskrift er til í @Krónan Innihald fyrir ca 4-6 mans: – Pasta: 220–300 g – Mozzarella: 200 g – Wyke mature cheddar: 200 g – Arla havarti: 200 g – Kjúkklingateningur/stoðblanda: 2,5 ml – Hvítlauksduft: 2,5 ml – Reykt paprika: 2,5 ml – Smjör: 22,5 ml – Hveiti: 22,5 ml – Evaporated milk: 200 ml – Rjómi: 180 ml – Dijon: 2,5 ml ♬ original sound - adamhelgason Þó að ýmsir kannist við hann sem þennan geðuga áhrifavald, þá er önnur hlið sem áhorfendur Íslands í dag fengu að kynnast í gærkvöldi. En það er frumkvöðlahlið kappans sem stendur fyrir stærðarinnar íslenskri sveppaframleiðslu í Hafnarfirði. Tómas Arnar hitti hann í höfuðstöðvunum. Fyrir um hálfu ári hóf Adam, ásamt æskuvinum sínum úr Vesturbænum, að selja fæðubótarefnið ljónsmakka eða Lion's Mane undir vörumerkinu North Tropics. Fæðubótarefnið virðist vera í ákveðinni tísku um þessar mundir en þáttastjórnandi varð þó að viðurkenna fáfræði sína og spyrja hreint út, hvað er þetta eiginlega? Hjálpar taugakerfinu „Í grunninn, það sem þetta gerir, þetta hjálpar taugakerfinu. Taugafrumurnar sem leiða upp í haus og niður í tær og fingur. Auðvitað hjálpar þeim að vaxa og styrkjast og þá þegar þetta kemur upp í hausinn, þá hjálpar þetta einmitt. Margir finna fyrir einbeitingu, betra minni, bara svona almennri ró yfir öllu taugakerfinu,“ segir Adam. „Ég myndi aldrei segja að þetta væri trend af því að þetta er eitthvað sem hefur verið notað í alveg nokkur þúsund ár í Asíu. Lion's Mane-sveppurinn hefur verið eitt af þeim bara svona, herbal natural medicines, og það er ekki langt síðan þetta kemur á vestrænan markað. Það sem ég heyrði af þessu fyrst var fyrir svona kannski svona sex árum, þegar forritarar í Silicon Valley voru að taka þetta til að ná aðeins lengra en hinir,“ segir Adam en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Sveppir Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Anthony Head er látinn Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Lífið samstarf Fleiri fréttir Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Sjá meira