Scholes segir félagið eyðileggja Mainoo Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. desember 2025 13:00 Einu myndirnar af Kobbie Mainoo með Manchester United þessa dagana eru af honum í utanyfirgallanum. Getty/Ash Donelon Paul Scholes er ævareiður vegna þess að miðjumaðurinn Kobbie Mainoo fær ekki að spila hjá Ruben Amorim, þjálfara United.
Það er sama hvaða leikmenn vantar í lið United, aldrei finnur Amorim pláss fyrir enska miðjumanninn sem einhverjir spáðu að yrði framtíðarmiðjumaður félagsins þegar hann kom ungur inn í liðið. Scholes er ellefufaldur Englandsmeistari með Manchester United og lék yfir sjö hundruð leiki fyrir félagið. Hann er einn af þeim sem eru hneykslaðir á þróun mála með Mainoo og þjálfara hans. „Það er verið að eyðileggja strákinn með því að nota hann ekki í liði sem getur ekki stjórnað fótboltaleik,“ skrifaði Paul Scholes í Instagram-færslu sem hann hefur síðan eytt. Þessi tvítugi leikmaður hefur aðeins byrjað einn leik á þessu tímabili. Það var í niðurlægjandi tapi gegn Grimsby Town úr 4. deild í deildabikarnum. Í ensku úrvalsdeildinni hefur hann aðeins spilað 171 mínútu í níu leikjum, allt sem varamaður. „Ég hata að sjá uppalda leikmenn fara, en það er líklega best fyrir hann núna. Nóg er komið,“ skrifaði Scholes enn fremur. Goðsögnin var sjálfur alinn upp hjá United og var allan sinn feril á Old Trafford. Eftir leikinn gegn West Ham á fimmtudaginn var Amorim spurður hvort hætta væri á að Mainoo missti móðinn eftir enn einn leikinn á bekknum. „Ég skil hvað þið eruð að segja. Þið elskið Kobbie. Hann byrjar inn á fyrir England, en það þýðir ekki að ég verði að setja hann inn á þegar mér finnst ég ekki eiga að gera það. Það er mín ákvörðun,“ svaraði Portúgalinn Ruben Amorim.
Enski boltinn Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira