Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Agnar Már Másson skrifar 1. janúar 2026 13:34 Inga Sæland búin til framkvæmda. Almenningi þykir aftur á móti flokki hennar ekki ganga sérstaklega vel að hrinda málum sínum í framkvæmd. Vísir/Bjarni Fleirum finnst Flokki fólksins ganga illa heldur en vel að koma málum sínum til framkvæmda í núverandi stjórnarsamstarfi, samkvæmt nýrri könnun. Alla jafna þykir almenningi samt núverandi stjórnarflokkum ganga betur að hrinda málum sínum í framkvæmd saman borið við fyrrverandi ríkisstjórn í desember 2023.
Tæplega 42 prósent svarenda í nýrri könnun maskínu segja Samfylkingunni ganga vel og rúmlega 28 prósent segja henni ganga illa að koma sínum málum í verk. Rest segir flokknum ganga í meðallagi. Þá töldu 36 prósent svarenda að Viðreisn gengi vel að koma málum í framkvæmd og 31 prósent töldu flokknum takast það illa en aðrir segja flokknum ganga í meðallagi. Aftur á móti telja um 29 prósent að Flokki fólksins gangi vel að hrinda sínum málum í framkvæmd en 44 prósent telja flokknum ganga illa við það og rest segir flokknum ganga í meðallagi. Flokki Ingu Sæland hefur gengið brösuglega að ná fram áherslumálum á borð við 48 strandveiðidaga og tengingu almannatryggingakerfisins við launavísitölu, en málin fengu ekki afgreiðslu fyrir þinglok í sumar. Meðal áherslumála flokksins sem hafa náð fram að ganga eru aftur á móti lögfesting samnings sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og frumvarp sem heimilar gæludýrahald í fjölbýli. Úr könnun sem Maskína framkvæmdi.Maskína Sömu spurningar var spurt í desember 2023, á tímum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Þar þóttu Sjálfstæðismenn standa sig best þar sem 30 prósent töldu þeim ganga vel en 31,5 prósent töldu flokknum ganga illa. Tæp 17 prósent töldu Framsókn ganga vel að hrinda málum í framkvæmd en og 30 prósent töldu þeim ganga illa. Verst gekk Vinstri grænum en þar töldu 13 prósent að flokknum gengi vel og 48 prósent að flokknum gengi illa að ná málum sínum fram.
Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skoðanakannanir Mest lesið Fleiri bitnir af hundunum Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Innlent Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Innlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Skaðabótasjóður Trumps í hættu Erlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Fleiri fréttir Fasteignamat lækkar að raunvirði „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Bein útsending: Kynna fasteignamat ársins 2027 Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Breyta hlaupaleiðum í Reykjavíkurmaraþoninu Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Sjá meira