Fyrsta mark Mateta í langan tíma dugði ekki Palace til að taka öll stigin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2026 19:29 Tom Cairney fagnaði jöfnunarmarki sínu fyrir Fulham með því að rífa sig úr treyjunni. Getty/Mike Hewitt Crystal Palace og Fulham byrjuðu nýtt ár með að gera 1-1 jafntefli í hörku Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni á Selhurst Park í dag.
Fyrsta mark leiksins og fyrsta mark ársins 2026 í deildinni skoraði Frakkinn Jean-Philippe Mateta. Það dugði þó ekki til sigurs. Tom Cairney jafnaði metin fyrir gestina tíu mínútum fyrir leikslok. Crystal Palace náði ekki að vinna leikinn en tókst að minnsta kosti að enda þriggja taphrinu sína. Fulham var á móti búið að vinna þrjá leiki í röð og slíta sig aðeins frá fallbaráttunni en sigurganga þeirra endaði í dag. Mateta kom Crystal Palace í 1-0 með marki á 39. mínútu. Mateta skallaði þá boltann í markið eftir frábæra fyrirgjöf frá Nathaniel Clyne. Frakkinn hafði ekki skorað mark í síðustu átta leikjum sínum en þetta var samt hans tíunda mark á tímabilinu. Jöfnunarmarkið var mjög lagleg afgreiðsla hjá Tom Cairney. Boltinn féll fyrir Cairney á vítateigslínunni og hann skrúfaði hann glæsilega í hornið. Dean Henderson gat ekkert gert við þessu skoti. Cairney reif sig úr treyjunni og hljóp til stuðningsmanna gestaliðsins til að fagna. Joachim Andersen, fyrrverandi leikmaður Crystal Palace, hefði átt að tryggja Fulham sigurinn með því sem hefði nánast verið síðasta spyrna leiksins, en hann þrumaði boltanum yfir þverslána.
Enski boltinn Fulham FC Crystal Palace FC Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Sjá meira