Rólegt veður en kalt næstu daga Atli Ísleifsson skrifar 2. janúar 2026 07:09 Það mun svo draga smám saman úr vindi í kvöld og nótt. Vísir/Vilhelm Veðrið verður frekar rólegt, en kalt næstu daga. Gera má ráð fyrir að það verði norðlæg átt, fimm til tíu metrar á sekúndu, og léttskýjað, en tíu til fimmtán metrar á sekúndu með dálitlum éljum á austanverðu landinu.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði tveggja til tíu stiga frost yfir daginn og kaldast inn til landsins. Það mun svo draga smám saman úr vindi í kvöld og nótt. „Á morgun verður vestan og norðvestan 8-13 m/s með stöku éljum austantil á landinu, en annars hægari breytileg átt og yfirleitt bjart. Áfram kalt í veðri. Á sunnudag gera spár ráð fyrir hægum breytileg áttum, en vestan 5-10 nyrst. Smávægis él á víð og dreif, en yfirleitt þurrt á suðvesturhorninu. Frost 0 til 8 stig að deginum,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og léttskýjað, en norðvestan 8-13 og dálítil él á Austurlandi. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Á sunnudag: Hæg breytileg átt og víða þurrt og bjart veður, en stöku él við norðurströndina. Áfram kalt í veðri. Á mánudag: Norðaustlæg átt 3-10. Skýjað á Norður- og Austurlandi og sums staðar svolítil él, en yfirleitt léttskýjað sunnan heiða. Frost 1 til 10 stig. Á þriðjudag: Austlæg átt. Skýjað með köflum og dálítil él á stöku stað, en bjartviðri sunnan- og suðvestanlands. Frost 2 til 13 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á miðvikudag: Austlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri. Talsvert frost um mest allt land. Á fimmtudag: Útlit fyrir austanátt með snjókomu eða slyddu, en yfirleitt þurrt á norðan- og vestanverðu landinu. Dregur úr frosti.
Veður Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Fleiri fréttir Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sjá meira