„Miður að bensínhákum sé umbunað“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 2. janúar 2026 21:44 Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að vel sé fylgst með breytingum á eldsneytisverði. vísir/Sigurjón Bensínverð hefur lækkað um þriðjung eftir áramót en Neytendasamtökunum berast kvartanir um að verði hafi verið haldið uppi fyrir þann tíma. Formaður segir ósanngjarnt að bensínhákum sé umbunað á sama tíma og rekstrarkostnaður sparneytinna bíla hækkar.
Örtröð hefur verið á bensínstöð Costco í allan dag, líkt og sjá má í myndbandinu hér að neðan. Þar er enda ódýrasta bensínið og raunar hefur það ekki verið ódýrara frá árinu 2017, eða í um átta ár. Eftir verðbreytingu samhliða nýju kílómetragjaldi kostar bensínlítrinn þar 171 krónu. Fyrir áramót kostaði lítrinn 268 krónur og verðið lækkaði því um þriðjung á milli daga. Dýrasti bensínlítrinn á höfuðborgarsvæðinu er nú meðal annars á N1 í Borgartúni. Fyrir áramót kostaði hann 311 krónur, en nú tæpar 215 krónur. Þrátt fyrir að verð á bensínlítra sé misjafnt milli stöðva virðist þetta meðalverðlækkun; í kringum þrjátíu og fimm prósent eða oft um níutíu til hundrað krónur. Í spá stjórnvalda var gert ráð fyrir að bensínverð myndi lækka um 89 til 105 krónur samhliða afnmámi bensíngjalds Formaður Neytendasamtakanna segir lækkanir vissulega í samræmi við það sem stefnt var að. Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur þó bent á að neytendur eigi meira inni, þar sem verð hafi ekki lækkað í samræmi við lækkandi heimsmarkaðsverð fyrir áramót. „Árvökulir neytendur eru alltaf í sambandi við okkur og það eru margir sem hafa bent okkur á þetta og við munum skoða það í samstarfi við þessi félög og stofnanir,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Gróði vegna lægra bensín- og díselverðs staldrar þó ekki lengi við í buddum landsmanna. Fyrsti gjalddagi vegna nýs kílómetragjalds er um næstu mánaðarmót. Nú þurfa ökumenn fólksbíla og jeppa sem eru léttari en 3,5 tonn, eða allt sem er minna en stór amerískur pallbíll, að greiða 6,95 krónur á hvern ekinn kílómetra. Breki segir að ítrekaðar athugasemdir hafi verið gerðar við að gjaldið sé jafn hátt fyrir Yaris og jeppa. Löng röð var við bensínstöð Costco í dag enda hafa eflaust margir beðið fram yfir áramót með að fylla á bílinn. Ódýrasta bensínið er nú sem fyrr hjá Costco.vísir/Sigurjón „Rekstrarkostnaður lítilla sparneytinna bíla er að hækka á meðan bensínhákar hagnast á þessum breytingum. Það er miður þegar við erum að reyna að draga úr brennslu jarðefnaeldsneytis að bensínhákunum sé umbunað á þennan hátt.“ Vonast þú enn til þess að þetta verði endurskoðað? „Það er nú svo að svona innheimta á sköttum þekkist hvergi annars staðar og hún hlýtur þá að vera í þróun og taka einhverjum breytingum þegar reynir á hana. Við munum bara taka þátt í þeim breytingartillögum þegar þar að kemur.“
Bensín og olía Neytendur Skattar, tollar og gjöld Kílómetragjald Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Sjá meira