Þessi bjóða sig fram fyrir Samfylkinguna í Reykjavík Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 3. janúar 2026 21:35 Jafnaðarfólk í höfuðborginni hefur úr nógu að velja en sautján manns bjóða sig fram í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík. Vísir/Samsett Í dag leið framboðsfrestur í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þannig er orðið ljóst að einhverjir eftirfarandi einstaklinga verða á listum Samfylkingarinnar í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara í vor.
Flokksvalið fer fram 24. janúar og eins og fjallað hefur verið um keppast Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Pétur Hafliði Marteinsson fyrrverandi knattspyrnumaður um oddvitasætið en barist verður um hvert sæti frá fyrsta og upp í það sjötta. Alls eru sautján sem gefa kost á sér. Þétt setið um efstu sætin Um oddvitasætið berjast líkt og fyrr segir Heiða Björg Hilmisdóttir og Pétur Hafliði Marteinsson. Heiða Björg hefur verið borgarstjóri Reykjavíkur en líkt og í tilfelli forvera hennar í starfi, Einars Þorsteinssonar, virðist hún ekki njóta mikils stuðnings innan flokksins. Fréttir bárust undir áramótin af því að hann hafi farið á fund Kristrúnar Frostadóttir formanns og forsætisráðherra og þar hefur mögulegt framboð Péturs líklega borið á góma. Um annað sætið etja þrír jafnaðarmenn kappi. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir fór með sigur af hólmi úr ungliðaprófkjöri Hallveigar, félags ungs jafnaðarfólks í Reykjavík í byrjun desember. Skúli Helgason borgarfulltrúi sækist sömuleiðis eftir öðru sætinu auk Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur og Magneu Marinósdóttur. Bjarnveig Birta ólst upp í Breiðholti en er í dag búsett í Rimahverfi Grafarvogs ásamt eiginmanni sínum, Pétri Frey Sigurjónssyni og þremur börnum sem eru tveggja, fimm og sex ára. Hún er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði og M.Sc. gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Skúli Helgason hefur verið borgarfulltrúi Samfylkingarinnar frá árinu 2014. Áður sat hann á þingi frá 2009 til 2013 og var þar á undan framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar á árunum 2006 til 2009. Samskiptasérfræðingurinn og spunaleikarinn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir gefur einnig kost á sér í 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hún er formaður kvennahreyfingar flokksins og langar að leysa leikskólamálin í „eitt skipti fyrir öll.“ Steinunn er með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá Columbia University í New York og BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands. Fyrrverandi og núverandi borgarfulltrúar Magnea Marinósdóttir stjórnmálafræðingur sækist eftir öðru til fjórða sæti. Magnea hefur starfað innan Alþingis, stjórnarráðsins, sveitarfélaga, félagasamtaka, háskólasamfélagsins og alþjóðastofnana. Húnr stofnfélagi í Samfylkingunni og hefur undanfarin ár haldið utan um málefnastarf hennar á sviði stjórnarfars og mannréttinda. Jafnframt situr hún í stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík, Verkalýðsráðsins og Kvennahreyfingarinnar og er varamaður í framkvæmdastjórn flokksins. Guðmundur Ingi Þórodsson, formaður Afstöðu - réttindafélags, hefur boðið sig fram í þriðja sætið. Hann hefur verið félagi í Samfylkingunni frá árinu 2015. Guðmundur Ingi er uppalinn í Árbæ og Breiðholti. Hann fer ekki einungis með formennsku í Afstöðu heldur situr hann einnig í trúnaðarráði Eflingar og í fulltrúaráði Gildis. Áður starfaði hann á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar í málefnum heimilislausra. Hann er með BA-gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands og stundar nú meistaranám bæði í opinberri stjórnsýslu við HÍ og í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst. Guðmundur Ingi hefur verið félagi í Samfylkingunni frá árinu 2015 og er formaður Rósarinnar, landsfélags jafnaðarmanna. Sara Björg Sigurðardóttir, fyrsti varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sækist einnig eftir þriðja sætinu. Hún er fædd í Reykjavík árið 1977 og var í sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022. Í þriðja til fjórða sæti bjóða sig fram þau Birkir Ingibjartsson og Dóra Björt Guðjónsdóttir. Sú síðarnefnda gekk til liðs við Samfylkinguna fyrr í vetur eftir að hafa verið borgarfulltrúi Pírata. Í þriðja til fimmta sæti býður sig fram Ellen J. Calmon. Samkvæmt tilkynningu frá kjörstjórn lítur listinn fyrir flokksvalið svona út: 1. sæti - Heiða Björg Hilmisdóttir 1. sæti - Pétur Hafliði Marteinsson 2. sæti - Bjarnveig Birta Bjarnadóttir 2. sæti - Skúli Helgason 2. sæti - Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir 2. - 4. sæti - Magnea Marinósdóttir 3. sæti - Guðmundur Ingi Þóroddsson 3. sæti - Sara Björg Sigurðardóttir 3. - 4. sæti - Birkir Ingibjartsson 3. - 4. sæti - Dóra Björt Guðjónsdóttir 3. - 5. sæti - Ellen J. Calmon 4. sæti - Stein Olav Romslo 4. - 6. sæti - Valný Óttarsdóttir 4. - 6. sæti - Rúnar Logi Ingólfsson 5. sæti - Ólöf Helga Jakobsdóttir 5. - 6. sæti - Bjarni Þór Sigurðsson 6. sæti - Sigfús Ómar Höskuldsson
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sveitarstjórnarmál Borgarstjórn Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira