Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2026 09:04 Michael Carrick mun stýra Manchester United fram á vor. Getty/Marc Atkins Manchester United hefur samkvæmt heimildum David Ornstein hjá The Athletic náð munnlegu samkomulagi við Michael Carrick og þjálfarateymi hans um að stýra liðinu út tímabilið.
Ráðningarnar eru háðar frágangi samningsatriða og tilkynningu. Þeir verða komnir til starfa fyrir leik United á móti Manchester City á laugardaginn. Ole Gunnar Solskjær hafði verið orðaður við stöðuna en Norðmaðurinn mun ekki snúa aftur til að taka við stjórnartaumunum á Old Trafford í annað sinn. Simone Stone hjá BBC segir að eftir því sem hann veit best séu enn nokkur smávægileg atriði sem þurfi að ganga frá milli United og Michael Carrick en ekkert sem kemur í veg fyrir að fullt samkomulag náist í dag.Það myndi þýða að Carrick gæti stýrt æfingu þegar aðalliðið snýr aftur á morgun eftir nokkurra daga frí og stýrt United út tímabilið. 🚨 Manchester United reach agreement in principle with Michael Carrick + coaching staff to take over until end of season. Appointments subject to finalising contract details & announcement. In position for #MUFC ahead of #MCFC visit this Sat @TheAthleticFC https://t.co/wE76Fgmo0U— David Ornstein (@David_Ornstein) January 13, 2026 Michael Carrick stýrði liði United áður sem bráðabirgðastjóri í þremur leikjum eftir að Solskjær var rekinn haustið 2021, vann tvo leiki og gerði eitt jafntefli. Hann yfirgaf félagið eftir að Ralf Rangnick var ráðinn sem bráðabirgðastjóri út tímabilið 2021–22, en hafði áður verið í þjálfarateymi Jose Mourinho og Solskjær strax eftir að hann lagði skóna á hilluna árið 2018. Carrick var ráðinn til Middlesbrough í ensku B-deildinni í október 2022 og kom liðinu úr 21. sæti, þegar hann tók við, upp í það fjórða í lok tímabils. Liðið tapaði fyrir Coventry City í undanúrslitum umspilsins. Middlesbrough endaði í áttunda sæti tímabilið 2023–24 og Carrick fékk þriggja ára samning í lok tímabilsins. Liðið endaði svo í 10. sæti tímabilið 2024–25 og var Englendingurinn rekinn í lok þess tímabils. Sem leikmaður spilaði Carrick 464 leiki fyrir United á tólf ára tímabili og vann fimm ensku úrvalsdeildartitla og einn Meistaradeildartitil. Hann lék áður með West Ham United og Tottenham Hotspur.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Enski boltinn Fleiri fréttir Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Sjá meira