Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 16. janúar 2026 22:00 Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara á fundinum í Reykholti í Bláskógabyggð. Magnús Hlynur Hreiðarsson Öryrkjar eru að fá mun hærri laun frá Tryggingastofnun en eldri borgarar eða um 51 þúsund krónur meira á mánuði miðað við lágmarkslífeyri eldri borgara eins og staðan er í dag.
Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara og Oddný Árnadóttir framkvæmdastjóri sambandsins eru á fundarherferð um landið þessa dagana þar, sem þau funda með fulltrúum félaganna út um allt land. Fundur númer þrjátíu var haldinn í Reykholti í Bláskógabyggð en alls verða fundirnir 59 og verða þeir kláraðir fyrir apríllok. En hver eru brýnustu málin hjá eldri borgurum í dag? „Brýnustu málin eru náttúrulega það að menn geti lifað af því, sem þeir fá frá Tryggingastofnun og sínum lífeyrissjóði. Það eru of margir, sem eru með of lítið og eru að berjast í bökkum,” segir Björn og bætir við að um 10 þúsund eldri borgarar séu nú undir lágmarkstaxta sé miðað við þann taxta, sem er á almenna vinnumarkaðnum. „Það er 365.000 kall, sem er lágmarkslífeyrir,” segir Björn. Hluti af fundarmönnum á fundinum í Reykholti mánudaginn 12. janúar.Magnús Hlynur Hreiðarsson Fram kom hjá Birni að öryrkjar, sem fengu hækkun á sínum launum 1. september síðastliðinn hafi mun hærri tekjur en eldri borgarar eru að fá í dag en öryrkjar eru nú komnir um 51 þúsund krónum upp fyrir lágmarkslífeyri eldri borgara í launum. Það sést vel á glæru, sem Björn var með. „Og þið sjáið núna að munurinn á því að grunnlífeyririnn hjá öryrkjunum og eldri borgurunum er orðinn 51.357 krónur á mánuði, sem er dálítið mikið,” segir Björn. Ein af glærunum, sem Björn var með á fundinum.Magnús Hlynur Hreiðarsson En hvernig tekur hann því? „Ég bara fagna því að þeir skulu fá hækkun en nú tel ég að það sé bara komið að okkur eldri borgurum”. Elínborg Sigurðardóttir, formaður Félags eldri borgara í Bláskógabyggð var ánægð með fundinn í Reykholti. „Mér finnst að við eigum að berjast fyrir þeim, sem hafa það skítt eins og Björn segir, þessum 10 til 12 þúsund manns á landinu, sem að eru mest megnið konur. Ég held að margt af þessu fólki hafi það skítt, þessi hópur og við þurfum að berjast fyrir þeim,” segir Elínborg. Elínborg Sigurðardóttir, sem er formaður Félags eldri borgara í Bláskógabyggð setti fundinn og sleit honum. Á eftir var öllum boðið upp á súpu og brauð og kaffi á eftir.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Eldri borgarar Bláskógabyggð Kjaramál Félagsmál Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Sjá meira