VG og Sanna sameina krafta sína Agnar Már Másson skrifar 18. janúar 2026 17:40 Í desember tilkynnti Sanna að hún myndi bjóða sig fram undir merkjum Vors til vinstri og vonaðist til að fá fleiri vinstri flokka í borginni með sér. Vísir/Anton Vinstri græn í Reykjavík og Vor til vinstri munu hafa myndað framboðsbandalag fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi mun leiða listann.
Þetta var ákveðið á félagsfundi VG í Reykjavík í dag, samkvæmt tilkynningu frá VG. Sanna, sem var kjörinn borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins í síðustu kosningum, muni leiða framboðið og fulltrúar Vors til vinstri skipa einnig fjórða og fimmta sæti. Fulltrúar VG muni skipa annað, þriðja og sjötta sæti listans. Sætum fyrir neðan það verði skipt með jafnræði að leiðarljósi, í hefðbundnum fléttulista. Í desember tilkynnti Sanna að hún myndi bjóða sig fram undir merkjum Vors til vinstri og vonaðist til að fá fleiri vinstri flokka í borginni með sér. VG heldur prófkjör fyrir 2. og 3. sætið Einnig var samþykkt að halda forval til að velja fulltrúa VG á listanum í þau 3 efstu sæti sem koma í hlut VG. Það verður gert með forvali sem mun fara fram helgina 20.-22. febrúar nk. með rafrænum hætti. Stjórn VG í Reykjavík var einnig falið að ljúka við vinnu að endanlegri tillögu að framboðinu. Að minnsta kosti tveir hafa gefið kost á sér í oddvitasæti VG í Reykjavík; Líf Magneudóttir, sem er sitjandi oddviti, og Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum. Í tilkynningu frá VG segir að ákvörðunin um sameiningu framboðanna sé tekin á grundvelli mikillar samstöðu í málefnum og sameiginlegrar sýnar á réttlátt og sanngjarnt samfélag. „Í kjölfar síðustu alþingiskosninga, þar sem engin skýr vinstri rödd á lengur sæti á Alþingi, er samstaða vinstrihreyfinga mikilvægari en nokkru sinni fyrr,“ segir í tilkynningunni. Fréttin hefur verið uppfærð.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstri græn Vor til vinstri Reykjavík Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira